Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs ávarpar ráðstefnugesti og setur ráðstefnuna.
Dagana 23. og 24. september tekur Héraðsskjalasafn Kópavogs á móti fulltrúum systurstofnana sinna af öllu landinu á ráðstefnu sem haldin er í stúkunni við Kópavogsvöllinn.
Á ráðstefnunni eru málstofur þar sem tekið er á ýmsum þáttum í daglegu starfi safnanna, svo sem staðlaða skráningu skjalasafna og reglur um aðgengi að þeim, nýlegar útgáfur skjalasafna bæði prentuð rit og á vef, samstarf við sögufélög og sameiginleg átök héraðsskjalasafnanna um söfnun skjala og margt fleira.
Þetta er þriðja ráðstefnan sem félagið heldur, árið 2011 var hún í Reykjavík og í fyrra á Akureyri. Hún er vettvangur fyrir starfsmenn skjalasafnanna að kynnast og efla samstarf sín á milli sem og að árétta mikilvægi starfs þeirra fyrir sveitarfélögin, bæði hið stjórnsýslulega hlutverk safnanna sem snýr að varðveislu skjallegra gjörninga sveitarfélaganna og veitingu aðgengis að þeim og hið menningarlega hlutverk sem snýr að eflingu á þekkingu á sögu umdæma héraðsskjalasafnanna.
Kópavog heimsækja af þessu tilefni fulltrúar héraðsskjalasafna af öllu landinu, frá Höfn til Ísafjarðar og Reykjavík til Húsavíkur og allt þar á milli.