Starf forstöðumanns Héraðsskjalasafns Austfirðinga er laust til umsóknar
Um er að ræða fullt starf. Leitað er að einstaklingi sem er sjálfstæður í vinnubrögðum og lipur í mannlegum samskiptum. Umsækjendur skulu hafa háskólapróf í námsgrein sem nýtist starfsemi safnsins og staðgóða þekkingu á starfssviði þess. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af safnastarfi og fjármálastjórn. Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.
Héraðsskjalasafn Austfirðinga er sjálfstæð skjalavörslustofnun í eigu sveitarfélaganna í Múlasýslum. Meginhlutverk safnsins er að safna, varðveita og skrá skjöl aðildarsveitarfélaganna og annarra afhendingarskyldra aðila á starfssvæði safnsins. Nánar um hlutverk og starfsemi Héraðsskjalasafnsins vísast til laga um Þjóðskjalasafn (nr. 66/1985) og reglugerðar um héraðsskjalasöfn (nr. 283/1994). Frekari upplýsingar um Héraðsskjalasafn Austfirðinga má finna á vefsíðu safnsins www.heraust.is
Forstöðumaður Héraðsskjalasafns Austfirðinga leiðir starfsemi safnsins og annast daglegan rekstur þess samkvæmt starfslýsingu. Forstöðumaður undirbýr starfs- og fjárhagsáætlun með stjórn safnsins, hefur umsjón með sérverkefnum og ræður starfsmenn.
- Stjórn Héraðsskjalasafns Austfirðinga ræður í starf forstöðumanns. Miðað er við að viðkomandi hefji störf í byrjun febrúar 2013.● Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Huggarðs, Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélaga.
- Nánari upplýsingar um starfið og launakjör veita Ólafur B. Valgeirsson, stjórnarformaður Héraðsskjalasafnsins (s. 898 1439 / nf. obv@simnet.is ) og Hrafnkell Lárusson, forstöðumaður (s. 861 9077).
- Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsferil og meðmælendur sendist Héraðsskjalasafni Austfirðinga, Laufskógum 1, 700 Egilsstaðir. Skal umslagið merkt „Starfsumsókn“. Umsóknir sem sendar eru í tölvupósti skal senda á netfangið:hl@heraust.is
- Umsóknarfrestur er til 21. janúar 2013.
- Stjórn áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Stjórn Héraðsskjalasafns Austfirðinga