Nýlega var Héraðsskjalasafni Svarfdæla færð ljósprentun af Guðbrandsbiblíu. Númer 35 af 500 tölusettum eintökum, sem gerð voru.
Saga hennar er sú að hún var gefin Vallakirkju 1958 af Stefaníu og Valdimar Snævarr, foreldrum þáverandi prests á Völlum. Þessi biblía var síðan varðveitt í kirkjunni, þar til hún var tekin í geymslu vegna endurbyggingar kirkjunnar.
Vígja átti kirkjuna þann 24. nóvember 1996 og var Biblían aftur komin á sinn stað, er kirkjan brann aðfararnótt 1. nóvember. Eftir brunann var ýmislegt dót úr rústunum sett í kar og komið í geymslu. Mörgum árum seinna átti að losa karið, talið var að þetta væri allt ónýtt dót og fannst þá biblían, sem hafði bara brunnið að ofan og sortnað á hliðum. Að öðru leyti er hún heil og óbrunnin. Guðsorð brennur ekki!