Miðvikudaginn 12. október 2011 hélt Félag héraðsskjalavarða á Íslandi fræðslufund, námskeið, um skjalamál grunnskóla. Námskeiðið var með sama sniði og námskeið sem haldið var í ágúst. Námskeiðið var haldið í Háskólafélagi Suðurlands á Selfossi í gegnum fjarfundabúnað og voru um 70 þátttakendur. Þátttakendur voru skólastjórar, starfsmenn grunnskóla, sveitarfélaga, skjalastjórar, héraðsskjalaverðir og starfsmenn héraðsskjalasafnanna víðsvegar um landið. Um 140 skólastjórnendur og starfsmenn grunnskóla hafi því sótt námskeiðið fyrir utan starfsmenn í grunnskólum Reykjavíkurborgar.
Þátttakendur á námskeiðinu í húsakynnum Háskólafélagsins á Selfossi.
Sem fyrr voru það starfsmenn Borgarskjalasafns og menntasviðs Reykjavíkurborgar, þau Svanhildur Bogadóttir borgarskjalavörður, Guðjón Indriðason deildarstjóri á Borgarskjalasafni og Eygló Traustadóttir skjalastjóri menntasviðs Reykjavíkurborgar, sem fluttu erindi en menntasvið Reykjavíkurborgar hefur í samvinnu við Borgarskjalasafn og grunnskóla í Reykjavík unnið að gerð skjalavistunaráætlunar, leiðbeininga um skjalavörslu og málalykla fyrir grunnskólana. Borgarskjalasafn og menntasvið hafa á árinu haldið nokkra fræðslufundi með skólastjórnendum í Reykjavík og heimsótt grunnskóla. Glærur frá fundunum er hægt að finna hér.
Á námskeiðinu var fjallað um: lög og reglugerðir er varða skjalahald grunnskóla og upplýsingarétt, skjalavistunaráætlun grunnskólanna í Reykjavík, en þeir vinna allir samkvæmt sömu skjalavistunaráætlun. Áætlunin var samþykkt var af borgarskjalaverði og forstöðumanni menntasviðs Reykjavíkur í mars s.l., leiðbeiningar um skjalavörslu og skráningarkerfi, frágang skjala og afhendingar til héraðsskjalasafna auk vinnuáætlunar og eftirfylgni.
Óhætt er að fullyrða að námskeiðið gekk vel. Spurningar voru fjölmargar og líflegar umræður víða. Ljóst er að þetta fyrirkomulag á námskeiðum um skjalavörslu á vegum Félags héraðsskjalavarða eflir héraðsskjalasöfnin og starfsemi þeirra. Skjalasöfnin verða sýnilegri í nærsamfélaginu og þeim tekst betur en áður að styðja við stjórnsýslu sveitarfélaganna og þeirra stofnanna sem sveitarfélögin reka. Fjarfundafyrirkomulagið sparar sveitarfélögunum einnig umtalsverðan ferðakostnað. Aðgangur að námskeiðinu var ókeypis.