Félag um skjalastjórn stendur fyrir málþingi um frumvarp að nýjum upplýsingalögum sem nú liggur fyrir á Alþingi.
Málþingið verður haldið í fyrirlestrarsal Borgarskjalasafnsins í Grófarhúsinu Tryggvagötu 15, 6. hæð, þriðjudaginn 10. maí og hefst kl. 10.00.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Meðal breytinga skv. frumvarpinu er að gildissvið upplýsingalaga verður víkkað með þeim hætti að þau taki til fleiri aðila en nú er.
Einnig verður hægt er að skilgreina fleiri skjöl sem vinnuskjöl, stjórnvöld geta lokað ákveðnum skjölum í lengri tíma og þjóðskjalavörður getur lokað ákveðnum skjölum í 110 ár.
Í frumvarpinu eru jafnframt lagðar til töluverðar breytingar á lögum um Þjóðskjalasafn.
Dagskrá málþingsins
Elín Ósk Helgadóttir, lögfræðingur hjá forsætisráðuneyti: „Er frumvarp til upplýsingalaga til þess fallið að auka upplýsingarétt almennings?“
Svanhildur Bogadóttir, Borgarskjalavörður: „Í þágu almannahagsmuna“
Eiríkur G. Guðmundsson, Sviðsstjóri upplýsingasviðs Þjóðskjalasafns Íslands: „Aukið aðgengi?“
Sigurður Már Jónsson, Blaðamannafélag Íslands: „Allt upp á borðið“
Nokkur umræða hefur spunnist um frumvarp að nýjum upplýsingalögum undanfarið.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ritaði grein er birtist í Fréttablaðinu 23. apríl 2011:
Villandi umræða um upplýsingalög
Guðmundur Hörður Guðmundsson fyrrverandi upplýsingafulltrúi í stjórnarráðinu ritaði grein er birtist í Fréttablaðinu 7. maí 2011:
Áframhaldandi leynd
Hér má finna athugasemdir héraðsskjalavarða við lagafrumvarpið