Gilsbakki – íslenskt menningarheimili í sveit

her_borg_gilsbakki_sigfus_eymundsson

Þann 13. maí n.k. verður opnuð ný sýning í Safnahúsi Borgarfjarðar í tilefni af 50 ára afmæli Héraðsskjalasafns Borgarfjarðar. Sýningin hefur hlotið heitið Séra Magnús og er um ævi Magnúsar Andréssonar (1845-1922) sem bjó á Gilsbakka í Hvítársíðu frá árinu 1881, ásamt konu sinni Sigríði Pétursdóttur. Séra Magnús var m.a. alþingismaður Mýramanna um margra ára skeið og kom þar að mótun sjálfstæðisbaráttu Íslendinga um og eftir 1900. Af þessu tilefni er sýningin helguð minningu Jóns Sigurðssonar á merku afmælisári hans.

Sýningin verður opnuð með stuttri athöfn á neðri hæð Safnahúss (Börn í 100 ár) kl. 17.30 þennan dag, föstudaginn 13. maí.

Allir velkomnir!

her_borg_magnus_andresson

Sr. Magnús Andrésson á Gilsbakka.

Sr. Magnús á Gilsbakka