her_aust_forstodumenn

Bára Stefánsdóttir og Hrafnkell Lárusson fyrir framan safnahúsið á Egilsstöðum.

Þann 1. maí s.l. tók Bára Stefánsdóttir við starfi forstöðumanns hjá Héraðsskjalasafni Austurlands á Egilsstöðum. Hún er bókasafns- og upplýsingafræðingur að mennt, hefur auk þess kennsluréttindi og stundar MA-námi í hagnýtri menningarmiðlum við sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands. Bára vann áður í Borgarholtsskóla þar sem hún vietti bókasafninu forstöðu auk þess að vera vefstjóri skólans. Hrafnkell Lárusson, fráfarandi héraðsskjalavörður hóf störf sem verkefnisstjóri hjá Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Austurlandi auk þess að vera í doktorsnámi við sama skóla. Hrafnkell var héraðsskjalavörður frá 2008 og í fyrstu stjórn Félags héraðsskjalavarða á Íslandi frá 2009 til 2011. Við bjóðum Báru velkomna til starfa og þökkum Hrafnkeli fyrir ánægjulegt og gefandi samstarf.

Nýr héraðsskjalavörður á Austurlandi