Þann 30. desember sl. voru auglýstar í Stjórnartíðindum nýjar reglur Þjóðskjalasafns Íslands um frágang, skráningu og afhendingu pappírsskjala afhendingarskyldra aðila og tóku þær gildi þann 1. janúar 2011.
Þar sem héraðsskjalasöfn eru starfandi skulu sveitarfélög og afhendingaskyldir aðilar þeirra afhenda pappírsskjalasöfn sín til viðkomandi héraðsskjalasafns. Þau sveitarfélög sem ekki standa að rekstri héraðsskjalasafns eiga að afhenda skjöl sín til Þjóðskjalasafns Íslands. Reglurnar gilda um frágang og skráningu pappírsskjala afhendingarskyldra aðila, sem ber að afhenda Þjóðskjalasafni Íslands að jafnaði eigi síðar en þegar þau hafa náð þrjátíu ára aldri sbr. 6. gr. laga nr. 66/1985 um Þjóðskjalasafn Íslands.
Nánari upplýsingar eru í reglunum sjálfum sem má nálgast hér.