Héraðsskjalasafn Austfirðinga birtir reglulega á heimasíðu sinni (www.heraust.is) myndasýningar sem jafnan innihalda myndir úr safni Ljósmyndasafns Austurlands, en það safni er hýst hjá héraðsskjalasafninu.
Nýlega birtist myndasýning á heimasíðu safnsins. Sýningin nefnist einfaldlega Jólasýning (og má finna hana undir flipanum Myndir efst á síðunni). Að venju hefur Arndís Þorvaldsdóttir haft veg og vanda af vali mynda á sýninguna og jafnframt ritar hún myndatexta. Myndirnar í sýningunni eru allar teknar af Emilíu Blöndal. Ártöl eru tilgreind séu þau þekkt.
Í sumri og sól. Óþekktar konur í garðinum við Sólvang.
Emilía Antonsdóttir Blöndal fæddist á Seyðisfirði 6. mars 1897. Hún lærði ljósmyndun á Ljósmyndastofu Eyjólfs Jónssonar og starfaði þar á árunum 1915-1924. Árið 1924 giftist hún Theódór Blöndal, bankaútibússtjóra, og vann ekki opinberlega við ljósmyndun eftir það. Emilía lést árið 1987.
Ljósmyndavélin var aldrei langt undan og eru myndir Emilíu ómetanlegar heimildir um mannlíf og atvinnuhætti í Seyðisfjarðarkaupstað á 20. öld. Í lífi Emilíu var fjölskyldan í fyrsta sæti og sýna margar myndir hennar börn að leik og eru þannig bæði heimild um leiki barna og klæðnað. Afkomendur Emilíu færðu Ljósmyndasafni Austurlands myndir hennar og filmusafn til varðveislu árið 2003. Sólveig Sigurðardóttir, bókvörður á Seyðisfirði, skannaði myndirnar og vann samhliða ómetanlegt starf við öflun upplýsinga.
HL