Þriðjudaginn 16. apríl 2013 kl. 13.00 tekur Borgarskjalasafn Reykjavíkur, í samvinnu við Sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi, þátt í alþjóðlegum viðburði Borgarskjalasafnsins og bókasafnsins í Birmingham, Alabama. Þann dag verður hið áhrifamikla „Bréf úr Birmingham fangelsi“ lesið upp á yfir 200 stöðum í Bandaríkjunum og um heim allan til að minnast Martin Luther King Jr. og baráttunnar fyrir mannréttindum blökkumanna í Bandaríkjunum. Í Borgarskjalasafninu mun Luis Arreaga sendiherra Bandaríkjanna fjalla um líf og störf Martin Luther King Jr. og Jón Gnarr borgarstjóri Reykjavíkur talar um áhrif Martin Luther King Jr. á mannréttindabaráttu í dag. Sendiherra Bandaríkjanna, Jón Gnarr borgarstjóri og Anna Pála Sverrisdóttir formaður Samtakanna ’78 munu svo lesa hluta úr bréfinu.

Tilefnið er að þann 16. apríl eru 50 ár liðin frá því að Martin Luther King Jr. byrjaði að skrifaði hið fræga „Bréf úr Birmingham fangelsi“ sem var svar við yfirlýsingu átta hvítra presta frá Alabama um réttindabaráttu blökkumanna í Bandaríkjunum þar sem þeir segja að baráttan eigi eingöngu að fara fram fyrir dómstólum, ekki á götum úti. Í svari sínu leggur Martin Luther King Jr. hugmyndafræðilegan grunn fyrir þá friðsamlegu réttindabaráttu sem hann stóð fyrir og útskýrði af hverju almenn mótmæli væri nauðsynleg. Bréfið markaði þáttaskil í baráttunni og er þekkt fyrir einstaka rökfestu King. Það þykir  einn af þekktari textum sem ritaðir hafa verið á enska tungu.

Markmið þessarar stundar er að vekja athygli á friðsamlegri mannréttindabaráttu um allan heim og minnast þess hve miklum straumhvörfum mannréttindabarátta blökkumanna í Bandaríkjunum með Martin Luther King Jr. í fararbroddi olli í heiminum.

Viðburðurinn fer fram í húsnæði Borgarskjalasafns Reykjavíkur, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, 3. hæð þriðjudaginn 16. apríl milli kl. 13 og 13.30.

Allir eru velkomnir.

Fræðast má nánar um viðburðinn á alþjóðavísu hérna.

Bréfið í heild sinni má sjá hérna.

Bréf úr fangelsi – upplestur fimmtugs bréfs Martin Luther King Jr.