Í nýútkomnu hefti Revista Arhivelor, Archives Review, nr. 2 LXXXVI (2009) sem gefið er út af Þjóðskjalasafni Rúmeníu (Arhivele Naţionale ale României), birtist grein Gunnars Marels Hinrikssonar skjalavarðar í Héraðsskjalasafni Kópavogs „Icelandic Demographic Documents from the Turn of the 17th Century“ eða Lýðfræðileg skjöl á Íslandi í kringum aldamótin 1700. Þetta er yfirlitsgrein um efnið en Gunnar hefur áður gert þessum efnum og tengdum skil í prófritgerð sinni frá Háskóla Íslands árið 2007 Um aukaskattheimtu konungs af hans landi Íslandi : stríðshjálpin 1679-1692 og í greinum um stríðshjálpina 1680 og kvikfjártalið 1703 í Ársriti Héraðsskjalasafns Kópavogs ogÁrnesingi, tímariti Sögufélags Árnesinga.
Íslensk grein í rúmensku skjalatímariti