Kolviðarhóll um 1930. Ljósmyndin er úr safni Miðengissystkinanna og er vafalítið tekin einum af fjölda ferðalaga þeirra um landið.
Þann 12. mars opnaði Héraðsskjalasafn Árnesinga ljósmyndasýninguna Úr kössum og koffortum í Listasafni Árnesinga í Hveragerði. Á sýningunni getur að líta myndir teknar á 60 ára tímabili frá um 1930 til 1990. Ljósmyndararnir eiga það sameiginlegt að hafa flestir verið búsettir í Hveragerði, Þorlákshöfn eða í Ölfusinu en allar myndir á sýningunni eru af þessu svæði. Myndirnar sýna m.a. þær miklu breytingar sem orðið hafa í Hveragerði og Þorlákshöfn.
Árið 2010 var gert átak í að safna myndum og bárust skjalasafninu um 70 þúsund ljósmyndir. Á skjalasafninu eru nú milli 100 og 125 þúsund ljósmyndir. Stærstur hluti þessara mynda er á 35 mm filmum en þar fyrir utan eru myndirnar líka á 6×6 og 6×9 filmum, litskyggnum, pappír og á glerplötum. Um þessar mundir stendur yfir skönnun og skráning ljósmyndanna og hafa bæst við tvö stöðugildi tímabundið á skjalasafninu vegna þessa verkefnis. Megintilgangur verkefnisins er að gera ljósmyndir í vörslu skjalasafnsins aðgengilegar almenningi og að skrá þær svo þær geti nýst á sem fjölbreyttastan hátt. Skráning ljósmyndana er í raun samvinnuverkefni starfsmanna héraðsskjalasafnsins, ljósmyndara, áhugamanna um héraðssögu, staðkunnugra og þeirra sem þekkjast á ljósmyndunum.
Á legunni við Þorlákshöfn. Myndin er úr safni Benedikts Thorarensen.
Ef þú þekkir einhvern á myndunum eða á annan hátt getur veitt upplýsingar um þær, vinsamlegast hafðu samand við Héraðsskjalasafn Árnesinga.
ÞTM