{"id":679,"date":"2016-06-09T10:45:39","date_gmt":"2016-06-09T10:45:39","guid":{"rendered":"http:\/\/wp2.edge.is\/?p=679"},"modified":"2021-10-27T10:21:43","modified_gmt":"2021-10-27T10:21:43","slug":"hysing-opinberra-gagna-i-skyi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/?p=679","title":{"rendered":"H\u00fdsing opinberra gagna \u00ed sk\u00fdi"},"content":{"rendered":"<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignnone size-full wp-image-148\" src=\"http:\/\/wp2.edge.is\/wp-content\/uploads\/2016\/11\/sky-1363333250XvV.jpg\" alt=\"sky-1363333250xvv\" width=\"615\" height=\"407\" \/><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 vir\u00f0ist stundum vefjast fyrir m\u00f6nnum hva\u00f0a reglur og l\u00f6g gilda um h\u00fdsingu\/vistun opinberra gagna stj\u00f3rnvalda \u00ed svok\u00f6llu\u00f0u sk\u00fdi. Opinber skj\u00f6l eru ekki \u00f6ll a\u00f0gengileg almenningi,\u00a0\u00feau eru\u00a0\u00f6ll \u00feau g\u00f6gn sem myndast vi\u00f0 starfsemi stj\u00f3rnvalda hvort heldur tr\u00fana\u00f0arg\u00f6gn e\u00f0a g\u00f6gn sem eru a\u00f0gengileg \u00e1n takmarkana, \u00f3h\u00e1\u00f0 \u00e1ritunarformi. Um v\u00f6rslu gagnanna\/skjalanna gilda <a href=\"http:\/\/www.althingi.is\/lagas\/nuna\/2014077.html\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">l\u00f6g um opinber skjalas\u00f6fn nr. 77\/2014<\/a>.<\/p>\n<p>Svok\u00f6llu\u00f0 \u201esk\u00fd\u201c (\u00e1 ensku \u201ecloud\u201c) til vistunar skjala e\u00f0a skjalasafna hins opinbera eru annm\u00f6rkum h\u00e1\u00f0 og koma ekki til greina \u00e1 erlendri grundu. \u00dear koma til \u00fdmsir \u00fe\u00e6ttir sem erfitt er a\u00f0 festa vi\u00f0 \u00e1byrg\u00f0 eins \u00fej\u00f3nustusala me\u00f0 samningi, g\u00f6gnin eru jafnvel var\u00f0veitt hj\u00e1 \u00f6\u00f0rum (undirverkt\u00f6kum) a\u00f0 nokkru \u00ed \u00fdmsum l\u00f6gsagnarumd\u00e6mum \u00f3l\u00edkra landa. \u00dev\u00ed er vandkv\u00e6\u00f0um bundi\u00f0 a\u00f0 halda tilteknum l\u00f6gpers\u00f3num vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00e1byrg\u00f0 sem nau\u00f0synlegt er a\u00f0 s\u00e9 \u00e1 v\u00f6rslu skjala\/gagna mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 opinberar skyldur vi\u00f0 v\u00f6rslu \u00feeirra.<\/p>\n<p>Framsal \u00feeirrar \u00e1byrg\u00f0ar er takmarka\u00f0, forst\u00f6\u00f0uma\u00f0ur m\u00e1 a\u00f0eins afsala s\u00e9r skjalav\u00f6rslu\u00e1byrg\u00f0 me\u00f0\u00a0afhendingu gagna\/skjala til opinbers skjalasafns.<\/p>\n<p>Framsal \u00e1 skjalav\u00f6rsluskyldum forst\u00f6\u00f0umanna ver\u00f0ur a\u00f0 vera skv. l\u00f6gum. H\u00e6tt er vi\u00f0 a\u00f0 l\u00f6gbundi\u00f0 eftirlit me\u00f0 v\u00f6rslu og ums\u00fdslu stj\u00f3rnvalda \u00e1 skj\u00f6lum ver\u00f0i torvelda\u00f0 mj\u00f6g og jafnvel gert \u00f3hugsandi me\u00f0 \u00fej\u00f3nustukaupum sem fela \u00ed s\u00e9r vistun opinberra gagna \u00ed sk\u00fdi. A\u00f0 \u00f6llu samanl\u00f6g\u00f0u sem h\u00e9r segir vir\u00f0ist ekki heimilt, mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 l\u00f6g, reglur og gott stj\u00f3rns\u00fdslusi\u00f0fer\u00f0i, a\u00f0 vi\u00f0h\u00f6f\u00f0 s\u00e9 sk\u00fdjavistun rafr\u00e6nna gagna af h\u00e1lfu stj\u00f3rns\u00fdslu og stofnana hins opinbera sem a\u00f0keypt \u00fej\u00f3nusta.<span id=\"more-1922\"><\/span><\/p>\n<h2>Sk\u00fd \u2013 skilgreining og markmi\u00f0<\/h2>\n<p>Sk\u00fd (enska: Cloud) er or\u00f0 sem nota\u00f0 er \u00ed augl\u00fdsingaskyni vi\u00f0 marka\u00f0ssetningu tiltekinnar \u00fej\u00f3nustu og mun fyrst hafa veri\u00f0 nota\u00f0 sem sl\u00edkt af Amazon.com \u00e1ri\u00f0 2006. Um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a t\u00f6lvu\u00fej\u00f3nustukaup yfir net \u00fear sem keypt eru afnot af h\u00fdsingu gagna, net\u00fej\u00f3num, forritum og \u00fej\u00f3nustu. H\u00fdsing getur t.d. fari\u00f0 fram \u00ed st\u00f3rum samtengdum gagnaverum. \u00d6ryggisafritum er a\u00f0 jafna\u00f0i komi\u00f0 fyrir \u00e1 fleiri en einum sta\u00f0. \u00cd sta\u00f0 hef\u00f0bundinnar fj\u00e1rfestingar \u00ed b\u00fana\u00f0i er um \u00fej\u00f3nustukaup a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. Stofnunin Free Software Foundation Europe gengur svo langt \u00e1 vefs\u00ed\u00f0u sinni a\u00f0 segja \u201eThere is no cloud, just other people\u2018s computers\u201c (Ekkert sk\u00fd er til, a\u00f0eins annarra manna t\u00f6lvur) og \u00ed \u00fev\u00ed felst kjarni m\u00e1lsins.<\/p>\n<p>\u00c1st\u00e6\u00f0a \u00feess a\u00f0 taka upp \u00fej\u00f3nustu af \u00feessu tagi er fj\u00e1rhagslegur sparna\u00f0ur, en \u00fea\u00f0 \u00fearfnast \u00fe\u00f3 n\u00e1nari athugunar \u00fear sem fleira er \u00ed h\u00fafi hj\u00e1 opinberum stj\u00f3rnv\u00f6ldum. H\u00e6tt er vi\u00f0 a\u00f0 s\u00e1 sparna\u00f0ur sem horft yr\u00f0i til vi\u00f0 kaup stj\u00f3rnvalda \u00e1 h\u00fdsingar\u00fej\u00f3nustu fremur en a\u00f0 takast h\u00fdsinguna \u00e1 hendur sj\u00e1lf kynni jafnvel, \u00feegar upp er sta\u00f0i\u00f0, a\u00f0 skila s\u00e9r \u00ed meiri kostna\u00f0i me\u00f0 \u00feeim vandkv\u00e6\u00f0um sem sl\u00edk kaup hef\u00f0u \u00ed f\u00f6r me\u00f0 s\u00e9r.<\/p>\n<h2>Skjalav\u00f6rslu\u00e1byrg\u00f0 og eftirlitsskylda<\/h2>\n<p>Vert er a\u00f0 rifja upp \u00feann \u00fe\u00e1tt \u00ed skjalav\u00f6rslu sveitarf\u00e9laga sem opinberum skjalas\u00f6fnum er \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 sinna skv. l\u00f6gum. Mi\u00f0a\u00f0 er vi\u00f0 a\u00f0 \u00f6ll skj\u00f6l sveitarf\u00e9lags rati \u00ed v\u00f6rslu h\u00e9ra\u00f0sskjalasafns \u00feegar \u00feau eru 30 \u00e1ra e\u00f0a fyrr eftir atvikum, og \u00fe\u00e1 einkum \u00feegar stofnun, nefnd, r\u00e1\u00f0 e\u00f0a starfseining er l\u00f6g\u00f0 ni\u00f0ur. A\u00f0gengi almennings a\u00f0 skj\u00f6lum hins opinbera er skv. uppl\u00fdsingal\u00f6gum nr. 140\/2012 \u00ed 30 \u00e1r, en fer a\u00f0 l\u00f6gum um opinber skjalas\u00f6fn nr. 77\/2014 eftir \u00fea\u00f0. A\u00f0gengistakmarkanir gilda um skj\u00f6lin skv. \u00feessum l\u00f6gum og l\u00f6gum um pers\u00f3nuvernd nr. 77\/2000 o.fl. eftir atvikum. Vegna v\u00f6rsluhlutverks h\u00e9ra\u00f0sskjalasafna f\u00e6rist \u00e1byrg\u00f0in \u00e1 a\u00f0gengi a\u00f0 skj\u00f6lunum til \u00feeirra me\u00f0 afhendingu opinberra skjala. Af \u00feessum s\u00f6kum er eftirlit me\u00f0 skjalahaldi sveitarf\u00e9laga \u00ed h\u00f6ndum vi\u00f0eigandi h\u00e9ra\u00f0sskjalasafna skv. l\u00f6gum. \u00dear er liti\u00f0 til efnislegrar var\u00f0veislu \u00fe.e. skr\u00e1ningar, umb\u00fa\u00f0a og geymslua\u00f0st\u00e6\u00f0na en einnig til uppl\u00fdsinga\u00f6ryggis. Ver\u00f0i misbrestur \u00e1 var\u00f0veislu skjala hj\u00e1 stj\u00f3rnvaldi \u00feannig a\u00f0 um tj\u00f3n er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a e\u00f0a uppl\u00fdsingaleka \u00e1 tr\u00fana\u00f0arg\u00f6gnum ver\u00f0ur vi\u00f0eigandi h\u00e9ra\u00f0sskjalasafn a\u00f0 f\u00e1 vitneskju um \u00fea\u00f0 sem eftirlitsstofnun og sk\u00fdrist \u00fea\u00f0 af \u00feeirri \u00e1byrg\u00f0 sem \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 takast \u00e1 hendur sem v\u00f6rslustofnun skjalanna s\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n<p>\u00cd l\u00f6gum um opinber skjalas\u00f6fn nr. 77\/2014 er kve\u00f0i\u00f0 \u00e1 um eftirlitsskyldu opinberra skjalasafna me\u00f0 skjalav\u00f6rslu og skjalahaldi (skjalastj\u00f3rn) stj\u00f3rnvalda. H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn sveitarf\u00e9lags\/sveitarf\u00e9laga fer me\u00f0 \u00feetta eftirlit \u00ed s\u00ednu umd\u00e6mi.<\/p>\n<p>\u00c1byrg\u00f0ar\u00e1kv\u00e6\u00f0i \u00edslenskra laga um skjalas\u00f6fn stj\u00f3rnvalda eru \u00ed 22. grein laga nr. 77\/2014. \u00cd \u00feeim felst a\u00f0 s\u00e1 sem ber \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 skjalav\u00f6rslu afhendingarskyldra stj\u00f3rnvalda og stofnana\u00a0\u00fe.e. hluta\u00f0eigandi forst\u00f6\u00f0uma\u00f0ur skuli tryggja skj\u00f6l fyrir \u00f3l\u00f6glegri ey\u00f0ileggingu, breytingu og \u00f3leyfilegum a\u00f0gangi. \u00deannig er sk\u00fdrt a\u00f0 forst\u00f6\u00f0uma\u00f0ur ber skjalav\u00f6rslu\u00e1byrg\u00f0 skv. l\u00f6gum. \u00c1 \u00feeim grundvelli er \u00e6tlast til \u00feess af h\u00e1lfu opinberra skjalasafna a\u00f0 skjalas\u00f6fnum \u00ed stj\u00f3rns\u00fdslu og stofnunum s\u00e9 haldi\u00f0 \u00ed sundur \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00e1byrg\u00f0 og \u00fev\u00ed fylgir a\u00f0 vald forst\u00f6\u00f0umanna yfir skjalahaldi \u00fev\u00ed er \u00feeir eru \u00e1byrgir fyrir s\u00e9 \u00f3skora\u00f0 \u00e1 grundvelli 22. greinar laga nr. 77\/2014. Skj\u00f6l \u00f3l\u00edkra skjalamyndara eiga ekki a\u00f0 blandast saman yfir valdm\u00f6rk eftir ge\u00f0\u00fe\u00f3tta starfsmanna e\u00f0a vegna hentugleika \u00ed skrifstofurekstri.<\/p>\n<p>Allt a\u00f0gengi a\u00f0 tr\u00fana\u00f0arg\u00f6gnum og a\u00f0gengistakm\u00f6rku\u00f0um g\u00f6gnum ver\u00f0ur a\u00f0 skr\u00e1 af n\u00e1kv\u00e6mni og ver\u00f0ur a\u00f0 vera alfari\u00f0 \u00ed h\u00f6ndum \u00feess stj\u00f3rnvalds sem l\u00f6g kve\u00f0a \u00e1 um og \u00e1 forr\u00e6\u00f0i \u00feess forst\u00f6\u00f0umanns sem fer me\u00f0 skjalav\u00f6rslu\u00e1byrg\u00f0 skv. 22. grein laga nr. 77\/2014. Hli\u00f0sj\u00f3n ver\u00f0ur a\u00f0 hafa af <a href=\"http:\/\/www.personuvernd.is\/efst-a-baugi\/urskurdir-og-alit\/2015\/greinar\/nr\/2008\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">\u00e1liti Pers\u00f3nuverndar 22. september 2015 um vinnslu og \u00f6ryggi pers\u00f3nuuppl\u00fdsinga \u00ed vefkerfinu Mentor <\/a>me\u00f0 v\u00edsun til 6. t\u00f6lul. 3. mgr. 37. gr. laga nr. 77\/2000 \u00ed m\u00e1li nr. 2015\/1203.\u00a0\u00dear er og v\u00edsa\u00f0 til laga nr. 77\/2014 um opinber skjalas\u00f6fn en ekki fari\u00f0 \u00fat \u00ed t\u00falkun \u00feeirra.<\/p>\n<h2>Opinber skjalav\u00f6rslu\u00e1byrg\u00f0 og \u00f6ryggis\u00fe\u00e6ttir gagnvart vistun \u00ed sk\u00fdi<\/h2>\n<p>Vi\u00f0 h\u00fdsingu skjala utan opinberrar stofnunar og \u00e1 \u00e1byrg\u00f0 annars en \u00feess sem fer me\u00f0 \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 skjalav\u00f6rslu a\u00f0 l\u00f6gum er um framsal \u00e1 skjalav\u00f6rslu\u00e1byrg\u00f0 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. Ekki er framsalsheimild \u00e1 henni \u00ed l\u00f6gum nema til opinbers skjalasafns. Sl\u00edk r\u00e1\u00f0st\u00f6fun kann a\u00f0 fela \u00ed s\u00e9r afsal \u00e1 m\u00f6guleikum til \u00feess a\u00f0 axla l\u00f6gbundna \u00e1byrg\u00f0 forst\u00f6\u00f0umanns \u00ed \u00feessu tilliti. Sl\u00edkt kann a\u00f0 hafa eftirm\u00e1l \u00ed f\u00f6r me\u00f0 s\u00e9r og \u00f6rugglega komi eitthva\u00f0 upp \u00e1. Starfsma\u00f0ur forst\u00f6\u00f0umannsins getur sinnt v\u00f6rslunni \u00ed umbo\u00f0i yfirmanns s\u00edns, en framsal \u00fat fyrir stofnunina er ekki heimila\u00f0. \u00deegar rafr\u00e6n g\u00f6gn eru komin \u00ed hendur h\u00fdsingarfyrirt\u00e6kis \u00e1 \u00fea\u00f0 \u00ed reynd allskostar vi\u00f0 vi\u00f0skiptavininn hva\u00f0 var\u00f0ar hverskonar r\u00e1\u00f0st\u00f6fun \u00feeirra. Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0i stj\u00f3rnvaldsins er \u00fe\u00e1 \u00ed uppn\u00e1mi \u00fev\u00ed raunverulegt forr\u00e6\u00f0i gagnanna er \u00e1 annarri hendi.<\/p>\n<p>Sk\u00fdja\u00fej\u00f3nusta sem felur \u00ed s\u00e9r h\u00fdsingu rafr\u00e6nna gagna \u00e1 erlendri grundu er talin \u00f3hugsandi hj\u00e1 s\u00e6nskum stj\u00f3rnv\u00f6ldum. \u00cd uppl\u00fdsingariti fr\u00e1 Almannav\u00f6rnum s\u00e6nska r\u00edkisins (Myndigheten f\u00f6r samh\u00e4lsskydd och beredskap), <a href=\"https:\/\/www.msb.se\/RibData\/Filer\/pdf\/26589.pdf\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">V\u00e4gledning-informationss\u00e4kerhet i upphandling. Informationss\u00e4kerhet i upphandling av system, outsourcing och molntj\u00e4nster<\/a>, (Lei\u00f0arv\u00edsir-uppl\u00fdsinga\u00f6ryggi \u00ed innkaupum. Uppl\u00fdsinga\u00f6ryggi \u00ed innkaupum \u00e1 kerfum, \u00fatvistun og sk\u00fd\u00fej\u00f3nustu) \u00fatgefnu \u00ed apr\u00edl 2013, m\u00e1 gl\u00f6ggva sig \u00e1 s\u00e6nsku kr\u00f6funum.<br \/>\nSl\u00edk vistun e\u00f0a h\u00fdsing gagna er einnig \u00fatiloku\u00f0 hj\u00e1 norskum stj\u00f3rnv\u00f6ldum skv. yfirl\u00fdsingu r\u00edkisskjalavar\u00f0ar Noregs 29. september 2014 (<a href=\"http:\/\/arkivverket.no\/arkivverket\/Arkivverket\/Om-oss\/Aktuelt\/Nyhetsarkiv\/Nyhetsarkiv-2014\/Riksarkivaren-seier-nei-til-skyarkivering-i-utlandet\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">Riksarkivaren seier nei til skyarkivering i utlandet<\/a>). R\u00edkisskjalasafn Noregs hefur og sent fr\u00e1 s\u00e9r huglei\u00f0inguna Skjalal\u00f6gin og sk\u00fdja\u00fej\u00f3nusta \u2013 \u00f6ryggi e\u00f0a hindrun? (<a href=\"http:\/\/arkivverket.no\/arkivverket\/Arkivverket\/Om-oss\/Aktuelt\/Nyhetsarkiv\/Nyhetsarkiv-2015\/Arkivloven-og-skytjenester-sikring-eller-hindring\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">Arkivloven og skytjenester \u2013 sikring eller hindring?<\/a> ).<\/p>\n<p>\u00c1kv\u00e6\u00f0i norsku skjalalaganna um bann vi\u00f0 \u00fatflutningi opinberra skjala vantar \u00ed \u00edslensku l\u00f6gin um opinber skjalas\u00f6fn, einu \u00e1kv\u00e6\u00f0i um sl\u00edkt bann eru \u00e1kv\u00e6\u00f0i laga nr. 80\/2012 um menningarminjar (sem \u00e1\u00f0ur voru \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0minjal\u00f6gum skv. l\u00f6gum nr. 60\/1996) og laga nr. 57\/2011 um skil menningarver\u00f0m\u00e6ta til annarra landa og n\u00e1 \u00feau til skjalasafna eldri en 50 \u00e1ra.<\/p>\n<p>\u00dearna koma til \u00f6ryggishagsmunir sem var\u00f0a grundvallarsj\u00e1lfst\u00e6\u00f0i \u00feeirra stofnana og sveitarf\u00e9lags sem \u00ed hlut eiga, og hva\u00f0 r\u00edki\u00f0 snertir fullveldis-\/sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ism\u00e1l. Lagaumhverfi er anna\u00f0 \u00ed \u00f6\u00f0rum l\u00f6ndum, l\u00f6g um opinbera skjalav\u00f6rslu, stj\u00f3rns\u00fdslu, opinberar uppl\u00fdsingar og pers\u00f3nuvernd eru \u00fear me\u00f0 \u00fdmsum h\u00e6tti og horfa \u00fe\u00e1 \u00f6\u00f0ruv\u00edsi vi\u00f0 gagnvart erlendum stj\u00f3rnv\u00f6ldum en innlendum.<\/p>\n<p>Stj\u00f3rnvald \u00ed \u00f6\u00f0ru landi sem \u00fej\u00f3nustukaupandi \u00e1 erlendri grundu f\u00e6r a\u00f0eins almenna neytendavernd vi\u00f0 \u00feau kaup. Sama hl\u00fdtur a\u00f0 gilda um \u00edslensk stj\u00f3rnv\u00f6ld og s\u00e6nsk \u00ed \u00feessu tilliti. Fr\u00e1 \u00feessu sj\u00f3narhorni er l\u00f6gbundin v\u00f6rslu\u00e1byrg\u00f0 og tr\u00fana\u00f0arskyldur \u00ed uppn\u00e1mi s\u00e9u g\u00f6gn \u00edslensks sveitarf\u00e9lags \u00ed v\u00f6rslu fyrirt\u00e6kja \u00e1 erlendri grundu.<\/p>\n<p>M\u00e1 \u00feessu til stu\u00f0nings einnig v\u00edsa til upplj\u00f3strana Edward Snowdens um v\u00ed\u00f0t\u00e6kar nj\u00f3snir um rafr\u00e6n g\u00f6gn. Einnig m\u00e1 benda \u00e1 m\u00e1l austurr\u00edska laganemans Max Schrems gegn Facebook Ireland Ltd. sem d\u00e6mt var \u00ed \u00e1ri\u00f0 2015 (<a href=\"http:\/\/curia.europa.eu\/jcms\/upload\/docs\/application\/pdf\/2015-10\/cp150117en.pdf\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">M\u00e1l C-362\/14 fyrir Evr\u00f3pud\u00f3mst\u00f3lnum<\/a>) og snerist um h\u00fdsingu gagna og l\u00f6gs\u00f6gu r\u00edkja.<\/p>\n<p>Efnahags\u00fe\u00e1ttur h\u00fdsingar kann a\u00f0 fela \u00ed s\u00e9r \u00f6ryggisbresti. Lendi h\u00fdsingarfyrirt\u00e6ki\u00f0 \u00ed gjald\u00feroti getur reynst torvelt a\u00f0 endurheimta g\u00f6gn og tryggja \u00f6ryggi \u00feeirra, og \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 \u00feeim ver\u00f0ur \u00ed uppn\u00e1mi, erfitt er a\u00f0 meta st\u00f6\u00f0ugleika fyrirt\u00e6kja a\u00f0 \u00feessu leyti. Gildandi gjaldskr\u00e1 h\u00fdsingarfyrirt\u00e6kis getur teki\u00f0 breytingum sem er einnig \u00e1h\u00e6ttu\u00fe\u00e1ttur. S\u00e9 h\u00fdsingara\u00f0ili erlendis er kostna\u00f0ur \u00ed erlendum gjaldeyri, \u00fea\u00f0 felur \u00ed s\u00e9r \u00e1h\u00e6ttu. Ni\u00f0urhal erlendis fr\u00e1 kostar einnig nokkra fj\u00e1rmuni, \u00feannig a\u00f0 upp kemur s\u00fa sta\u00f0a a\u00f0 \u00ed reynd er tekinn a\u00f0gangseyrir a\u00f0 skj\u00f6lunum. A\u00f0gengi a\u00f0 erlendri sk\u00fdjavistun er h\u00e1\u00f0 netsambandi vi\u00f0 \u00cdsland sem er h\u00e1\u00f0 s\u00e6strengjum.<\/p>\n<p>Komi eitthva\u00f0 upp \u00e1 vi\u00f0 v\u00f6rslu gagna \u00ed sk\u00fdi \u00fear sem gagnaver eru erlendis kann m\u00e1larekstur vegna misbrestanna a\u00f0 reynast torveldur. Nefna m\u00e1 t.d. hry\u00f0juverk, a\u00f0gangsbrot, skemmdarverk og \u00fev\u00ed um l\u00edkt. Jafnframt er torvelt a\u00f0 halda uppi vi\u00f0unandi eftirliti me\u00f0 sl\u00edkri v\u00f6rslua\u00f0fer\u00f0, en eftirlit felur \u00ed s\u00e9r a\u00f0 sannreyna v\u00f6rslusta\u00f0 gagna og skjala og a\u00f0b\u00fana\u00f0 \u00fear og \u00f6ryggisr\u00e1\u00f0stafanir, ekki einv\u00f6r\u00f0ungu a\u00f0 f\u00e1 sv\u00f6r vi\u00f0 spurningum, tilv\u00edsun til sta\u00f0la o.s.frv. \u00deetta var\u00f0ar einnig skjalav\u00f6rslu\u00e1byrg\u00f0 forst\u00f6\u00f0umanna.<\/p>\n<p>Eftirlitshlutverki\u00f0 er sem fyrr segir skv. \u00edslenskum l\u00f6gum hj\u00e1 opinberu skjalasafni hva\u00f0 skjalav\u00f6rslu og skjalahald var\u00f0ar og a\u00f0 auki hj\u00e1 pers\u00f3nuvernd \u00fear sem \u00fea\u00f0 \u00e1 vi\u00f0.<\/p>\n<p>Afsta\u00f0a s\u00e9rfr\u00e6\u00f0inga v\u00ed\u00f0a um heim er mj\u00f6g \u00e1 eina lund:<br \/>\nH\u00e9r m\u00e1 sj\u00e1 <a href=\"https:\/\/www.youtube.com\/watch?v=EkbiYXIaFnc\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">umfj\u00f6llun kanad\u00edsk-\u00edtalska skjalavar\u00f0arins Dr. Luci\u00f6nu Duranti <\/a>um \u00feetta efni.<\/p>\n<p>H\u00e9r m\u00e1 sj\u00e1 umm\u00e6li fransks l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ings um \u00feetta efni \u00ed fr\u00f6nsku heimildarmyndinni <a href=\"http:\/\/www.inexplique-endebat.com\/2015\/05\/les-gardiens-de-la-memoire-big-data.html\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">Les gardiens de la m\u00e9moire<\/a> fr\u00e1 2013 eftir Quentin Domart (\u00e1 m\u00edn\u00fatu 27:30)<\/p>\n<p>Umfj\u00f6llun bandar\u00edska l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingsins Richard T. Holland: \u201e<a href=\"https:\/\/41g41s33vxdd2vc05w415s1e-wpengine.netdna-ssl.com\/wp-content\/uploads\/2018\/07\/law_public_records_adv27-3_0.pdf\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">Public Records, Electronic Documents<\/a><br \/>\n<a href=\"https:\/\/www.mma.org\/resources-mainmenu-182\/doc_view\/850-law-public-records-electronic-documents-and-traps-for-the-unwary\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">and Traps for the Unwary<\/a>\u201c\u00a0\u00ed Municipal Advocate Magazine 2012\u00a0Vol. 27\u00a0Nr. 3.<\/p>\n<p>H.S.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 vir\u00f0ist stundum vefjast fyrir m\u00f6nnum hva\u00f0a reglur og l\u00f6g gilda um h\u00fdsingu\/vistun opinberra gagna stj\u00f3rnvalda \u00ed svok\u00f6llu\u00f0u sk\u00fdi. Opinber skj\u00f6l eru ekki \u00f6ll a\u00f0gengileg almenningi,\u00a0\u00feau eru\u00a0\u00f6ll \u00feau g\u00f6gn sem myndast vi\u00f0 starfsemi stj\u00f3rnvalda hvort heldur tr\u00fana\u00f0arg\u00f6gn e\u00f0a g\u00f6gn sem<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[5],"tags":[],"class_list":["post-679","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-frettir"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/679","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=679"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/679\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1478,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/679\/revisions\/1478"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=679"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=679"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=679"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}