{"id":434,"date":"2012-04-16T09:06:04","date_gmt":"2012-04-16T09:06:04","guid":{"rendered":"http:\/\/wp2.edge.is\/?p=434"},"modified":"2016-11-08T09:06:22","modified_gmt":"2016-11-08T09:06:22","slug":"lagafrumvord-um-inn-og-utflutning-menningarverdmaeta","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/?p=434","title":{"rendered":"Lagafrumv\u00f6r\u00f0 um inn- og \u00fatflutning menningarver\u00f0m\u00e6ta"},"content":{"rendered":"<p align=\"justify\"><em><img decoding=\"async\" src=\"http:\/\/wayback.vefsafn.is\/wayback\/20141025062321im_\/http:\/\/www.heradsskjalasafn.is\/images\/stories\/handritinheim.jpg\" alt=\"\" border=\"0\" \/><\/em><\/p>\n<p align=\"justify\"><em>Merki\u00f0 sem undirb\u00faningsnefnd \u00c1rnasafnsbyggingar \u00e1 \u00cdslandi seldi til fj\u00e1r\u00f6flunar 1. desember 1952. \u201eMerki\u00f0 er f\u00f6lgulur fl\u00f6tur, t\u00e1kn skinnhandrits \u00e1 br\u00fanum grunni, en styrk h\u00f6nd me\u00f0 fja\u00f0rapenna hefir n\u00fdloki\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 rita or\u00f0in: \u201eHandritin heim\u201c.\u201c B\u00f6rnin sem seldu merki\u00f0 \u00e1 fullveldish\u00e1t\u00ed\u00f0arh\u00f6ldunum fengu a\u00f0 fara \u00e1 \u00ferj\u00fab\u00ed\u00f3 \u00ed N\u00fdja-b\u00ed\u00f3, Gamla-b\u00ed\u00f3, Austurb\u00e6jarb\u00ed\u00f3 og Tjarnarb\u00ed\u00f3 13. desember 1952. Mynd \u00far Morgunbla\u00f0inu 30. n\u00f3vember 1952.<\/em><\/p>\n<p align=\"justify\">Borgarskjalav\u00f6r\u00f0ur og h\u00e9ra\u00f0sskjalav\u00f6r\u00f0ur K\u00f3pavogs hafa hvor um sig rita\u00f0 umsagnir um frumvarp til laga um menningarminjar<\/p>\n<p align=\"justify\"><a href=\"http:\/\/www.althingi.is\/pdf\/umsogn.php4?lthing=140&amp;malnr=316&amp;dbnr=1393&amp;nefnd=am\" target=\"_blank\">Ums\u00f6gn Borgarskjalavar\u00f0ar Reykjav\u00edkur um frumvarp til laga um menningarminjar \u00feskj. 370 \u2013 316. m\u00e1l<\/a><\/p>\n<p align=\"justify\"><a href=\"http:\/\/www.althingi.is\/pdf\/umsogn.php4?lthing=140&amp;malnr=316&amp;dbnr=1105&amp;nefnd=am\" target=\"_blank\">Ums\u00f6gn h\u00e9ra\u00f0sskjalavar\u00f0ar K\u00f3pavogs um frumvarp til laga um menningarminjar \u00feskj. 370 \u2013 316. m\u00e1l<\/a><\/p>\n<p align=\"justify\">Borgarskjalav\u00f6r\u00f0ur ger\u00f0i m.a. alvarlegar athugasemdir vi\u00f0 a\u00f0 \u00ed frumvarpinu v\u00e6ri ekkert fjalla\u00f0 um hva\u00f0a atri\u00f0i \u00feurfi a\u00f0 hafa \u00ed huga var\u00f0andi var\u00f0veislu skjalasafna e\u00f0a stakra skjala sem eru \u00fej\u00f3\u00f0argersemar. Ekki v\u00e6ri kve\u00f0i\u00f0 \u00e1 um skr\u00e1 yfir mikilv\u00e6g skjalas\u00f6fn \u00ed einkaeigu. Einnig vanta\u00f0i a\u00f0 kve\u00f0i\u00f0 v\u00e6ri \u00e1 um a\u00f0 leita\u00f0 v\u00e6ri til s\u00e9rfr\u00e6\u00f0inga \u00e1 svi\u00f0i skjalav\u00f6rslu var\u00f0andi bei\u00f0nir um \u00fatflutning skjalasafna.<\/p>\n<p align=\"justify\">H\u00e9ra\u00f0sskjalav\u00f6r\u00f0ur K\u00f3pavogs \u00edtreka\u00f0i fyrri ums\u00f6gn s\u00edna sem var sameiginleg me\u00f0 h\u00e9ra\u00f0sskjalaver\u00f0i \u00c1rnesinga og ger\u00f0i almennar athugasemdir vi\u00f0 a\u00f0fer\u00f0ir vi\u00f0 umsagnarferli.<br \/>\nH\u00e9ra\u00f0sskjalaver\u00f0ir K\u00f3pavogs og \u00c1rnesinga sendu \u00e1\u00f0ur menntam\u00e1lanefnd Al\u00feingis sameiginlegar umsagnir um tv\u00f6 lagafrumv\u00f6rp er sn\u00faast um flutning menningarver\u00f0m\u00e6ta \u00e1 milli landa, me\u00f0 skj\u00f6l og skjalav\u00f6rslu \u00ed huga. Var \u00ed \u00feeim velt upp \u00fdmsum si\u00f0fer\u00f0islegum vandkv\u00e6\u00f0um og \u00e1tali\u00f0 hversu brotakennt yfirlit yfir st\u00f6\u00f0u m\u00e1la er \u00ed greinarger\u00f0, r\u00e9ttars\u00f6gulega og \u00fej\u00f3\u00f0r\u00e9ttarlega og a\u00f0 yfirlit yfir al\u00fej\u00f3\u00f0asamninga \u00e1 \u00feessu svi\u00f0i s\u00e9 \u00f3fullkomi\u00f0 auk \u00feess sem gagnr\u00fdnd var hugtakanotkun og \u00fe\u00fd\u00f0ingar \u00far Evr\u00f3pur\u00e9tti. Skjalavarsla s\u00e9 auk \u00feess ger\u00f0 hornreka fyrir var\u00f0veislu listgripa, fornminja og minjasta\u00f0a.<\/p>\n<p align=\"justify\"><a href=\"http:\/\/www.althingi.is\/pdf\/umsogn.php4?lthing=139&amp;malnr=651&amp;dbnr=2420&amp;nefnd=m\" target=\"_blank\">Ums\u00f6gn h\u00e9ra\u00f0sskjalavar\u00f0a K\u00f3pavogs og \u00c1rnesinga fr\u00e1 12. ma\u00ed 2011 um fyrri ger\u00f0 \u00feessa lagafrumvarps<\/a>, \u00fe.e. um frumvarp til laga um menningarminjar \u00feskj. 1153 \u2013 651. m\u00e1l \u00e1 139. l\u00f6ggjafar\u00feingi.<\/p>\n<p align=\"justify\">Ums\u00f6gn h\u00e9ra\u00f0sskjalavar\u00f0anna um \u00feetta frumvarp var sett fram samhli\u00f0a athugasemdum vi\u00f0 frumvarp til laga um skil menningarver\u00f0m\u00e6ta til annarra landa m.a. \u00ed lj\u00f3si \u00feess a\u00f0 menntam\u00e1lar\u00e1\u00f0herra m\u00e6lti fyrir b\u00e1\u00f0um frumv\u00f6rpunum \u00ed einu.<\/p>\n<p align=\"justify\">Ums\u00f6gnin hefst \u00e1 \u00feeirri gagnr\u00fdni a\u00f0 ekki komi n\u00e6gilega sk\u00fdrt fram \u00ed greinarger\u00f0 me\u00f0 frumvarpinu a\u00f0 grundv\u00f6llur laganna er 36. grein R\u00f3mars\u00e1ttm\u00e1lans.<br \/>\nHugtakanotkun, \u00fe\u00fd\u00f0ing \u00e1 hugt\u00f6kum og skilgreiningar hugtaka er har\u00f0lega gagnr\u00fdnd m.a. hugtaki\u00f0 menningarminjar, skj\u00f6l geta t\u00e6past talist minjar nema \u00ed fornleifafr\u00e6\u00f0ilegum skilningi. Einnig er gagnr\u00fdnt a\u00f0 ekki skuli ger\u00f0 faglega grein fyrir r\u00e9ttars\u00f6gulegri og \u00fej\u00f3\u00f0r\u00e9ttarlegri \u00fer\u00f3un \u00feessara m\u00e1la gagnvart \u00cdslandi og \u00cdslendingum \u00ed greinarger\u00f0 er fylgir frumvarpinu.<\/p>\n<p align=\"justify\">Bent er \u00e1 a\u00f0 upptalning \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0legum s\u00e1ttm\u00e1lum um vernd menningarver\u00f0m\u00e6ta s\u00e9 \u00e1b\u00f3tavant \u00ed greinarger\u00f0inni. \u00dear vantar t.d. UNIDROIT s\u00e1ttm\u00e1la um stolna e\u00f0a \u00f3l\u00f6glega \u00fatflutta menningargripi. 24. j\u00fan\u00ed 1995 er t\u00f3k gildi 1. j\u00fal\u00ed 1998. (UNIDROIT Convention on Stolen or Illegally Exported Cultural Objects) og S\u00e1ttm\u00e1la um vernd menningararfs ne\u00f0ansj\u00e1var 2. n\u00f3vember 2001 er t\u00f3k gildi 2. jan\u00faar 2009. (Convention on the Protection of the Underwater Cultural Heritage), en mestu muni um a\u00f0 ekki er nefnt a\u00f0 \u00cdsland er eitt \u00feriggja Evr\u00f3pur\u00edkja sem ekki \u00e1 a\u00f0ild a\u00f0 Haag s\u00e1ttm\u00e1lanum um vernd menningarver\u00f0m\u00e6ta \u00ed vopnu\u00f0um \u00e1t\u00f6kum fr\u00e1 1954 en hann er kj\u00f6lfestan \u00ed verndun menningarver\u00f0m\u00e6ta \u00fdmissa \u00fej\u00f3\u00f0a innan sem utan Evr\u00f3pu.<\/p>\n<p align=\"justify\">Gert er a\u00f0 umtalsefni a\u00f0 skj\u00f6l og skjalas\u00f6fn eru nefnd eins og \u00ed framhj\u00e1hlaupi \u00ed frumvarpinu og \u00feeim ekki ger\u00f0 vi\u00f0hl\u00edtandi skil l\u00edkt og fornminjum. M.a. er nefnt a\u00f0 full \u00fe\u00f6rf s\u00e9 \u00e1 Skjalav\u00f6rslusj\u00f3\u00f0i, ekki s\u00ed\u00f0ur en Fornminjasj\u00f3\u00f0i og H\u00fasafri\u00f0unarsj\u00f3\u00f0i.<\/p>\n<p align=\"justify\">Bent er \u00e1 \u00fe\u00fd\u00f0ingarvillu \u00ed texta laga nr. 123\/2008 sem vara\u00f0 var vi\u00f0 \u00e1 s\u00ednum t\u00edma en hlaut \u00fer\u00e1tt fyrir \u00fea\u00f0 sam\u00feykki Al\u00feingis fyrir or\u00f0 r\u00e1\u00f0uneytisins. Skilgreiningin \u00e1 skjali \u00ed \u00feeim l\u00f6gum er \u00fev\u00ed ekki noth\u00e6f \u00ed \u00feessu lagafrumvarpi og \u00fe\u00fd\u00f0ingarvilla er \u00ed frumvarpinu hva\u00f0 hana var\u00f0ar mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 enskan texta 11. t\u00f6luli\u00f0ar tilskipunar Evr\u00f3pusambandsins nr. 93\/7\/EBE.<br \/>\nVitna\u00f0 er \u00ed athugasemdir h\u00e9ra\u00f0sskjalavar\u00f0anna vi\u00f0 dr\u00f6g a\u00f0 l\u00f6gum um \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafn \u00cdslands 7. jan\u00faar 2011 og fjalla\u00f0 um vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 r\u00e1\u00f0uneytisins vi\u00f0 \u00feeim og \u00feau \u00e1talin. Einnig er skilningsleysi og vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafns \u00cdslands vi\u00f0 r\u00e9ttm\u00e6tum gagnr\u00fdnisr\u00f6ddum h\u00e9ra\u00f0sskjalavar\u00f0a \u00e1tali\u00f0.<\/p>\n<p align=\"justify\"><a href=\"http:\/\/www.althingi.is\/pdf\/umsogn.php4?lthing=139&amp;malnr=649&amp;dbnr=2417&amp;nefnd=m\" target=\"_blank\">Ums\u00f6gn h\u00e9ra\u00f0sskjalavar\u00f0a K\u00f3pavogs og \u00c1rnesinga um\u00a0 frumvarp til laga um skil menningarver\u00f0m\u00e6ta til annarra landa \u00feskj. 1151 \u2013 649. m\u00e1l \u00e1 139. l\u00f6ggjafar\u00feingi.<\/a><\/p>\n<p align=\"justify\">Megininntak umsagnarinnar er a\u00f0 menningarver\u00f0m\u00e6tum annarra \u00fej\u00f3\u00f0a \u00e6tti a\u00f0 skila til s\u00edns heima, \u00fea\u00f0 s\u00e9 n\u00e1tengt \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00cdslendingar geti gert sl\u00edkar kr\u00f6fur um endurheimt sinna eigin menningarver\u00f0m\u00e6ta.<\/p>\n<p align=\"justify\">Gagnr\u00fdnt er a\u00f0 ver\u00f0mat \u00e1 menningargripum r\u00e1\u00f0i miklu um l\u00f6ggj\u00f6fina og bent \u00e1 a\u00f0 \u00e1 sl\u00edkri marka\u00f0sv\u00e6\u00f0ingu s\u00e9u si\u00f0fer\u00f0islegir annmarkar. Einnig er mismunun \u00e1 skilum menningarver\u00f0m\u00e6ta eftir \u00fej\u00f3\u00f0erni \u00fe.e. eftir \u00fev\u00ed hvort \u00fea\u00f0 er innan e\u00f0a utan Evr\u00f3pusambandsins b\u00e6\u00f0i \u00f3\u00fearft og \u00f3vi\u00f0eigandi. Vir\u00f0ing fyrir menningarver\u00f0m\u00e6tum annarra \u00fej\u00f3\u00f0a \u00e1 ekki a\u00f0 vera mismunandi eftir \u00fej\u00f3\u00f0erni.<\/p>\n<p align=\"justify\">Bent er \u00e1 a\u00f0 grunnur laganna, sem er tilskipun Evr\u00f3pusambandsins gangi e.t.v. ekki n\u00f3gu langt og nefnt til sk\u00fdringar a\u00f0 innan sambandsins s\u00e9 St\u00f3ra-Bretland og Grikkland sem deili um forna gripi fr\u00e1 Grikklandi. Hagsmunir \u00cdslendinga af \u00fev\u00ed a\u00f0 takmarka vi\u00f0 t\u00edma endurheimt menningarver\u00f0m\u00e6ta sem hafa veri\u00f0 fluttir \u00f3l\u00f6glega \u00e1 milli landa eru engir.<br \/>\nHeildaryfirlitssk\u00fdrslu um \u00edslenskan menningararf \u00e1 \u00cdslandi og erlendan menningararf \u00e1 \u00cdslandi skortir og \u00fear me\u00f0 grundv\u00f6ll l\u00f6ggjafar og stefnu \u00ed \u00feessum efnum. Hugtakanotkun er \u00f3samr\u00e6md og g\u00f6llu\u00f0 \u00ed frumvarpinu (v\u00edsa\u00f0 er til umsagnar um frv. til laga um menningarminja um \u00fea\u00f0 og fleira). L\u00f6g\u00f0 er til a\u00f0ild a\u00f0 UNIDROIT s\u00e1ttm\u00e1lanum um stolna e\u00f0a \u00f3l\u00f6glega \u00fatflutta menningargripi og a\u00f0 l\u00f6ggj\u00f6fin mi\u00f0ist vi\u00f0 hann. \u00dej\u00f3\u00f0minjavarsla er sett \u00ed \u00f6ndvegi \u00ed frumvarpinu og ekki g\u00e6tt jafnr\u00e6\u00f0is vi\u00f0 skjalav\u00f6rslu. \u00dev\u00ed er lagt til a\u00f0 \u00feeir \u00fe\u00e6ttir er sn\u00faa a\u00f0 skjalav\u00f6rslu ver\u00f0i fremur felldir undir l\u00f6g um opinbera skjalav\u00f6rslu.<\/p>\n<p align=\"justify\"><a href=\"http:\/\/www.althingi.is\/lagas\/nuna\/2011057.html\" target=\"_blank\">Frumvarp \u00feetta var\u00f0 a\u00f0 l\u00f6gum sem taka gildi 1. jan\u00faar 2013.<\/a><\/p>\n<p align=\"justify\">H\u00e9ra\u00f0sskjalav\u00f6r\u00f0ur K\u00f3pavogs kom fyrir menntam\u00e1lanefnd Al\u00feingis \u00ed \u00e1g\u00fast 2011 vegna umsagnarinnar og vakti m.a. athygli \u00e1 a\u00f0 <a href=\"http:\/\/www.stjornlagarad.is\/servlet\/file\/MMR_umsogn_01.pdf?ITEM_ENT_ID=34714&amp;ITEM_VERSION=1&amp;COLLSPEC_ENT_ID=127\" target=\"_blank\">s\u00e9rfr\u00e6\u00f0i\u00e1lit Menningar- og menntam\u00e1lar\u00e1\u00f0uneytisins<\/a> sem Stj\u00f3rnlagar\u00e1\u00f0 \u00f3ska\u00f0i eftir um stj\u00f3rnarskr\u00e1r\u00e1kv\u00e6\u00f0i um vernd menningarver\u00f0m\u00e6ta \u00ed eigu \u00fej\u00f3\u00f0arinnar\u00a0 b\u00e6ri \u00ed s\u00e9r rangf\u00e6rslu um afhendingu hluta handrita \u00c1rnasafns til \u00cdslands \u00fear sem s\u00e1 gj\u00f6rningur var \u00ed s\u00e9rfr\u00e6\u00f0i\u00e1litinu kalla\u00f0 \u201ehandritagj\u00f6f Dana\u201c. Lag\u00f0i h\u00e9ra\u00f0sskjalav\u00f6r\u00f0urinn \u00e1herslu \u00e1 a\u00f0 raunveruleg s\u00e9rfr\u00e6\u00f0i\u00feekking b\u00fai a\u00f0 baki lagasetningu um v\u00f6rslu skjala og annarra menningarver\u00f0m\u00e6ta og taldi sl\u00edkri s\u00e9rfr\u00e6\u00f0i\u00feekkingu um skjalav\u00f6rslu \u00e1b\u00f3tavant \u00ed r\u00e1\u00f0uneytinu. Taldi hann \u00fe\u00e1 hugmynd Stj\u00f3rnlagar\u00e1\u00f0s mikilv\u00e6ga a\u00f0 ekki megi ve\u00f0setja menningarver\u00f0m\u00e6ti \u00fej\u00f3\u00f0arinnar ekki s\u00edst \u00ed lj\u00f3si ve\u00f0setningar \u00e1 r\u00e9ttindum til n\u00fdtingar \u00e1 fiskistofnum \u00edslensku \u00fej\u00f3\u00f0arinnar. \u00deetta v\u00e6ri enn br\u00fdnna \u00feegar liti\u00f0 v\u00e6ri til \u00feeirrar \u00e1herslu \u00e1 peningaver\u00f0mat \u00e1 \u00f3metanlegum ver\u00f0m\u00e6tum sem sj\u00e1 m\u00e1 \u00ed frumv\u00f6rpunum.<\/p>\n<p align=\"justify\">HS<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Merki\u00f0 sem undirb\u00faningsnefnd \u00c1rnasafnsbyggingar \u00e1 \u00cdslandi seldi til fj\u00e1r\u00f6flunar 1. desember 1952. \u201eMerki\u00f0 er f\u00f6lgulur fl\u00f6tur, t\u00e1kn skinnhandrits \u00e1 br\u00fanum grunni, en styrk h\u00f6nd me\u00f0 fja\u00f0rapenna hefir n\u00fdloki\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 rita or\u00f0in: \u201eHandritin heim\u201c.\u201c B\u00f6rnin sem seldu merki\u00f0 \u00e1 fullveldish\u00e1t\u00ed\u00f0arh\u00f6ldunum<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[5],"tags":[],"class_list":["post-434","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-frettir"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/434","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=434"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/434\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":435,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/434\/revisions\/435"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=434"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=434"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=434"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}