{"id":269,"date":"2010-12-22T13:17:26","date_gmt":"2010-12-22T13:17:26","guid":{"rendered":"http:\/\/wp2.edge.is\/?p=269"},"modified":"2016-11-04T13:17:49","modified_gmt":"2016-11-04T13:17:49","slug":"athugasemdir-vid-drog-ad-frumvarpi-til-laga-um-thjodskjalasafn-islands","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/?p=269","title":{"rendered":"Athugasemdir vi\u00f0 dr\u00f6g a\u00f0 frumvarpi til laga um \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafn \u00cdslands"},"content":{"rendered":"<p>H\u00e9ra\u00f0sskjalaver\u00f0ir allra 20 h\u00e9ra\u00f0sskjalasafna \u00e1 landinu hafa sameiginlega sent Mennta- og menningarm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneyti athugasemdir vi\u00f0 dr\u00f6g a\u00f0 frumvarpi til laga um \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafn \u00cdslands. Um nokkurn t\u00edma hefur veri\u00f0 unni\u00f0 a\u00f0 heildarendursko\u00f0un \u00e1 l\u00f6gum um \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafn \u00cdslands. Dr\u00f6gin eru n\u00fa a\u00f0gengileg \u00e1 <a href=\"http:\/\/www.menntamalaraduneyti.is\/menningarmal\/frumvorp\/drog-ad-frumvorpum\/nr\/5796\" target=\"_blank\">vef Mennta- og menningarm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneyti<\/a>. \u00de\u00e1 er h\u00e6gt a\u00f0 n\u00e1lgast <a href=\"http:\/\/www.menntamalaraduneyti.is\/frettir\/Frettatilkynningar\/nr\/5795\" target=\"_blank\">fr\u00e9ttatilkynningu r\u00e1\u00f0uneytisins h\u00e9r<\/a>.<\/p>\n<p>\u00cd \u00feessum sameiginlegu athugasemdum er a\u00f0eins t\u00e6pt \u00e1 \u00feeim hluta dragana er snerta h\u00e9ra\u00f0sskjalas\u00f6fnin, rekstur \u00feeirra sem er kosta\u00f0ur af sveitarf\u00e9l\u00f6gunum, stj\u00f3rns\u00fdslulegri st\u00f6\u00f0u skjalasafnanna o.s.frv. \u201e\u00cd sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 h\u00e9ra\u00f0sskjalas\u00f6fnin s\u00e9u sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ar skjalav\u00f6rslustofnanir \u00ed eigu sveitarf\u00e9laganna en undir faglegu eftirliti \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafns, eins og gildandi l\u00f6g gera r\u00e1\u00f0 fyrir, vir\u00f0ist andi frumvarpsins vera s\u00e1 a\u00f0 h\u00e9ra\u00f0sskjalas\u00f6fnin ver\u00f0i \u00fatib\u00fa fr\u00e1 \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafni, undir stj\u00f3rn \u00feess en sveitarf\u00e9l\u00f6gin f\u00e1i a\u00f0 grei\u00f0a fyrir rekstur \u00feeirra eftir sem \u00e1\u00f0ur. \u00dea\u00f0 vantar \u00ed frumvarpi\u00f0 a\u00f0 fjalla\u00f0 s\u00e9 markvisst um h\u00e9ra\u00f0sskjalas\u00f6fnin, stj\u00f3rns\u00fdslulega st\u00f6\u00f0u \u00feeirra, hlutverk, starfsvi\u00f0, \u00e1byrg\u00f0 og hlutverk h\u00e9ra\u00f0sskjalavar\u00f0a, a\u00f0gang a\u00f0 skj\u00f6lum safnanna o.s.frv.\u201c H\u00e9r fyrir ne\u00f0an eru fyrrnefndar athugasemdir.<\/p>\n<div>Mennta og menningarm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneyti\u00f0<\/div>\n<div>S\u00f6lvh\u00f3lsg\u00f6tu 4<\/div>\n<div>150 Reykjav\u00edk<\/div>\n<p><strong>Efni: Athugasemdir vi\u00f0dr\u00f6g a\u00f0frumvarpi til laga um \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafn \u00cdslands<\/strong><\/p>\n<p>N\u00faverandi l\u00f6g um \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafn \u00cdslands hafa gilt \u00ed aldarfj\u00f3r\u00f0ung. \u00deau t\u00f3ku vi\u00f0 af eldri l\u00f6gum um \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafn og l\u00f6gum um h\u00e9ra\u00f0sskjalas\u00f6fn fr\u00e1 1947. \u00c1 \u00feeim t\u00edma sem li\u00f0inn er fr\u00e1 setningu gildandi laga um \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafn hafa \u00fdmsar breytingar veri\u00f0ger\u00f0ar \u00e1 \u00feeim og t\u00edmab\u00e6rt er a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast \u00ed heildarendursko\u00f0un \u00e1 l\u00f6gunum, um lei\u00f0 og ger\u00f0 er \u00fattekt \u00e1 \u00e1standi skjalam\u00e1la \u00ed landinu og stj\u00f3rns\u00fdslu \u00feeirra ger\u00f0 skilvirkari og n\u00fat\u00edmalegri. H\u00e9r \u00e1 eftir fara almennar athugasemdir forsvarsmanna allra 20 h\u00e9ra\u00f0sskjalasafna \u00e1 \u00cdslandi vi\u00f0 fyrirliggjandi dr\u00f6g a\u00f0 frumvarpi til laga um \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafn \u00cdslands.<\/p>\n<p>A\u00f0 okkar mati \u00fearf a\u00f0 setja fram frumvarp \u00e1 grundvelli \u00e1kve\u00f0innar stefnum\u00f3tunar um opinbera skjalav\u00f6rslu til Skjalasafnalaga e\u00f0a Laga um opinber skjalas\u00f6fn. Erlend l\u00f6g, einkum norr\u00e6n, m\u00e6tti hafa til hli\u00f0sj\u00f3nar, en \u00e1 Nor\u00f0url\u00f6ndunum eru \u00ed gildi Arkivlag (Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 sett 1990 og Finnlandi sett 1994) Lov om arkiv, arkivlova (Noregi sett 1992) Arkivlov (Danm\u00f6rku sett 2002) \u00fe.e. skjalasafnal\u00f6g.<\/p>\n<p>Sta\u00f0a skjalav\u00f6rslum\u00e1la \u00ed dag er s\u00fa a\u00f0 \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafn \u00cdslands er h\u00f6fu\u00f0safn skjalav\u00f6rslu \u00ed landinu og m\u00f3tar reglur um skjalav\u00f6rslu opinberra a\u00f0ila. \u00dea\u00f0 framfylgir \u00feessum reglum gagnvart Al\u00feingi, r\u00e1\u00f0uneytum, d\u00f3mst\u00f3lum, stofununum og fyrirt\u00e6kjum r\u00edkisins og \u00feeim sveitarf\u00e9l\u00f6gum sem ekki eru a\u00f0ilar a\u00f0 h\u00e9ra\u00f0sskjalasafni. H\u00e9ra\u00f0sskjalas\u00f6fn landsins sj\u00e1 um a\u00f0 framfylgja \u00feeim reglum sem \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafn hefur sett og \u00fatf\u00e6ra \u00fe\u00e6r gagnvart skjalav\u00f6rslu sveitarf\u00e9laga sem undir \u00feau heyra. \u00feau gegna sama hlutverki \u00e1 safnasv\u00e6\u00f0i s\u00ednu og \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafn gagnvart \u00feeim a\u00f0ilum sem skilaskyldir eru til \u00feess. Verkefni h\u00e9ra\u00f0sskjalasafnanna eru m\u00f6rg og krefjast s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ikunn\u00e1ttu. Flutningur verkefna fr\u00e1 r\u00edki til sveitarf\u00e9laga hefur \u00ed f\u00f6r me\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 \u00e6 fleiri verkefni f\u00e6rast til h\u00e9ra\u00f0sskjalasafna og er \u00fea\u00f0 vel, enda teljum vi\u00f0 a\u00f0 skjalav\u00f6rslu s\u00e9 betur sinnt \u00feegar n\u00e1in tengsl eru \u00e1 milli einstakra stofnana s.s. sk\u00f3la og skjalavistunarstofnunar. \u00de\u00f3 er vert a\u00f0 benda \u00e1 a\u00f0 \u00feau sveitarf\u00e9l\u00f6g sem kj\u00f3sa a\u00f0 vera ekki a\u00f0ilar a\u00f0 h\u00e9ra\u00f0sskjalasafni eiga a\u00f0 f\u00e1 s\u00edna \u00fej\u00f3nustu fr\u00e1 \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafni, og \u00fear me\u00f0 \u00e1 kostna\u00f0 r\u00edksins, og \u00feurfa ekki a\u00f0 kosta nokkru til a\u00f0 hir\u00f0a um eldri skj\u00f6l s\u00edn og afgrei\u00f0slu \u00far \u00feeim.<\/p>\n<p>Mikilv\u00e6gt er a\u00f0 \u00ed l\u00f6gunum komi fram sk\u00fdr verkaskipting milli \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafns annars vegar og h\u00e9ra\u00f0sskjalasafna hins vegar. Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0i sveitarf\u00e9laga ver\u00f0ur a\u00f0 vir\u00f0a \u00ed skjalasafnal\u00f6gum og vi\u00f0 framkv\u00e6md \u00feeirra og tryggja ver\u00f0ur a\u00f0 skjalav\u00f6rslu\u00e1byrg\u00f0 forst\u00f6\u00f0umanna s\u00e9 sk\u00fdr, m.a. \u00feannig a\u00f0 \u00e1kv\u00f6r\u00f0un um ey\u00f0ingu skjala s\u00e9 a\u00f0eins tekin \u00e1 grundvelli \u00f3ska \u00feeirra sem upphaflega bera skjalav\u00f6rslu\u00e1byrg\u00f0ina, eins og gildandi l\u00f6g kve\u00f0a \u00e1 um. Endanleg \u00e1kv\u00f6r\u00f0un ver\u00f0ur a\u00f0 vera \u00ed h\u00f6ndum fj\u00f6lskipa\u00f0s stj\u00f3rnvalds me\u00f0 a\u00f0komu s\u00e9rfr\u00f3\u00f0ra manna.<\/p>\n<p>H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn \u00fearf a\u00f0 vera virkt stj\u00f3rnvald innan sveitarf\u00e9laga sem a\u00f0 \u00fev\u00ed standa og hafa eftirlit og yfirumsj\u00f3n me\u00f0 skjalav\u00f6rslum\u00e1lum \u00feeirra \u00e1 grundvelli lei\u00f0beininga og reglna \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafns, auk \u00feess a\u00f0 sinna fr\u00e6\u00f0slu um skjalav\u00f6rslu innan s\u00edns umd\u00e6mis. \u00dea\u00f0 frumvarp a\u00f0 l\u00f6gum um \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafn \u00cdslands sem n\u00fa hefur veri\u00f0 kynnt \u00ed dr\u00f6gum vir\u00f0ist vi\u00f0 fyrstu s\u00fdn vera h\u00e1lfkara\u00f0. \u00dea\u00f0 mi\u00f0ast n\u00e6r alfari\u00f0 vi\u00f0 \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafn og st\u00f6\u00f0u \u00feess \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 taka til opinberrar skjalav\u00f6rslu \u00ed heild. \u00deetta ver\u00f0ur s\u00e9rstaklega \u00e1berandi \u00ed greinarger\u00f0 me\u00f0 frumvarpinu \u00fear sem einungis er t\u00e6pt \u00e1 m\u00f6guleikum sveitarf\u00e9laga \u00e1 a\u00f0 hefja rekstur h\u00e9ra\u00f0sskjalasafna og \u00farr\u00e6\u00f0um \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafns til a\u00f0 leggja ni\u00f0ur \u00feau h\u00e9ra\u00f0sskjalas\u00f6fn sem ekki starfa skv. l\u00f6gum. Horft er framhj\u00e1 \u00fev\u00ed mikilv\u00e6ga hlutverki sem h\u00e9ra\u00f0sskjalas\u00f6fnin gegna vi\u00f0 a\u00f0 var\u00f0veita skj\u00f6l sveitarf\u00e9laga og \u00fear me\u00f0 miki\u00f0 af skj\u00f6lum sem var\u00f0a r\u00e9ttindam\u00e1l borgaranna sem s\u00f6fnin taka \u00e1kv\u00f6r\u00f0un um a\u00f0gang a\u00f0 \u00e1 hverjum degi.<\/p>\n<p>A\u00f0eins tv\u00e6r greinar frumvarpsins fjalla beinl\u00ednis um h\u00e9ra\u00f0sskjalas\u00f6fn (gr. 30 og 31). \u00dea\u00f0 hlutverk sem \u00feeim vir\u00f0ist \u00e6tla\u00f0 samkv\u00e6mt frumvarpinu er \u00f3lj\u00f3sara og er auk \u00feess skert fr\u00e1 gildandi l\u00f6gum. \u00cd sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 h\u00e9ra\u00f0sskjalas\u00f6fnin s\u00e9u sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ar skjalav\u00f6rslustofnanir \u00ed eigu sveitarf\u00e9laganna en undir faglegu eftirliti \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafns, eins og gildandi l\u00f6g gera r\u00e1\u00f0 fyrir, vir\u00f0ist andi frumvarpsins vera s\u00e1 a\u00f0 h\u00e9ra\u00f0sskjalas\u00f6fnin ver\u00f0i \u00fatib\u00fa fr\u00e1 \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafni, undir stj\u00f3rn \u00feess en sveitarf\u00e9l\u00f6gin f\u00e1i a\u00f0 grei\u00f0a fyrir rekstur \u00feeirra eftir sem \u00e1\u00f0ur. \u00dea\u00f0 vantar \u00ed frumvarpi\u00f0 a\u00f0 fjalla\u00f0 s\u00e9 markvisst um h\u00e9ra\u00f0sskjalas\u00f6fnin, stj\u00f3rns\u00fdslulega st\u00f6\u00f0u \u00feeirra, hlutverk, starfsvi\u00f0, \u00e1byrg\u00f0 og hlutverk h\u00e9ra\u00f0sskjalavar\u00f0a, a\u00f0gang a\u00f0 skj\u00f6lum safnanna o.s.frv.<\/p>\n<p>\u00cd 14. grein gildandi laga er kve\u00f0i\u00f0 \u00e1 um a\u00f0 sett skuli n\u00e1nari \u00e1kv\u00e6\u00f0i \u00ed regluger\u00f0, \u00fe.\u00e1 m. hverjir s\u00e9u afhendingarskyldir til h\u00e9ra\u00f0sskjalasafna. \u00deetta stendur \u00f3breytt sem er \u00e1g\u00e6tt, en \u00e1n 1. m\u00e1lsgreinar 14. greinarinnar sem er sl\u00e6mt. \u00de\u00f3tt upptalning 14. greinarinnar felist a\u00f0 nokkru \u00ed e li\u00f0 4. greinar draganna er ekki kve\u00f0i\u00f0 \u00e1 um a\u00f0 skj\u00f6l sveitarf\u00e9laga, stofnana og starfsmanna \u00feeirra, \u00f3h\u00e1\u00f0 \u00e1ritunarformi, skuli renna til h\u00e9ra\u00f0sskjalasafna \u00fear sem \u00feau starfa. \u00deetta ver\u00f0ur a\u00f0 tryggja \u00ed l\u00f6gunum \u00feannig a\u00f0 \u00f6ll tv\u00edm\u00e6li s\u00e9u tekin af um a\u00f0 skjalas\u00f6fn \u00feessara a\u00f0ila skuli renna \u00f3skert til \u00feess h\u00e9ra\u00f0sskjalasafns sem vi\u00f0komandi heyrir undir.<\/p>\n<p>\u00cd 14. grein gildandi laga er s\u00e9rstaklega kve\u00f0i\u00f0 \u00e1 um hva\u00f0a stj\u00f3rnv\u00f6ld og l\u00f6gpers\u00f3nur eigi a\u00f0 skila skj\u00f6lum s\u00ednum til h\u00e9ra\u00f0sskjalasafna m.a. f\u00e9l\u00f6g og samt\u00f6k \u201esem nj\u00f3ta verulega styrks af opinberu f\u00e9 og starfa eing\u00f6ngu innan umd\u00e6mis h\u00e9ra\u00f0sskjalasafnsins.\u201c \u00cd dr\u00f6gum a\u00f0 n\u00fdjum l\u00f6gum er v\u00edsa\u00f0 til 4. og 5. greinar lagana sem fjallar um r\u00edkisstofnanir. Halda m\u00e1 fram a\u00f0 me\u00f0 \u00feessum \u00e1kv\u00e6\u00f0um dragist skilaskylda \u00e1 skjalas\u00f6fnum saman.<\/p>\n<p>\u00cd frumvarpsdr\u00f6gunum kemur fram a\u00f0 Stj\u00f3rnarnefnd \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafnsins ver\u00f0ur l\u00f6g\u00f0 ni\u00f0ur \u00ed n\u00faverandi mynd. Stj\u00f3rnarnefnd \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafnsins er a\u00f0 okkar \u00e1liti mikilv\u00e6gur vettvangur til a\u00f0 h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 skj\u00f3ta m\u00e1lum til fj\u00f6lskipa\u00f0s valds. \u00cd raun og veru vir\u00f0ist samkv\u00e6mt frumvarpsdr\u00f6gunum a\u00f0 upphaf og endir allrar skjalav\u00f6rslu liggi hj\u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0skjalaver\u00f0i einum. Leggjum vi\u00f0 til a\u00f0 Stj\u00f3rnarnefnd \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafns starfi \u00e1fram en \u00ed breyttri mynd. M\u00e6tti hugsa s\u00e9r a\u00f0 stofna\u00f0 yr\u00f0i skjalar\u00e1\u00f0, skipa\u00f0 af menntam\u00e1lar\u00e1\u00f0herra, \u00fear yr\u00f0u teknar \u00e1kvar\u00f0anir, sem snertu t.d. grisjun skjalasafna, n\u00fdjar reglur um skjalav\u00f6rslu, lei\u00f0beiningar um skjalav\u00f6rslu, flutning skjala \u00far landi, s\u00f6fnun opinberra skjala af \u00f6\u00f0rum en til \u00feess b\u00e6rum a\u00f0ilum og umkvartanir var\u00f0andi starfsemi skjalasafna. Vi\u00f0 teljum mj\u00f6g mikilv\u00e6gt a\u00f0 fulltr\u00fai \u00far h\u00f3pi h\u00e9ra\u00f0sskjalavar\u00f0a eigi \u00fear s\u00e6ti, enda er st\u00f3r hluti af skjalav\u00f6rslu \u00e1 \u00cdslandi \u00e1 her\u00f0um h\u00e9ra\u00f0sskjalavar\u00f0a.<\/p>\n<p>Vert er a\u00f0 benda \u00e1 nokkrar t\u00f6lur \u00far starfsemi h\u00e9ra\u00f0sskjalasafna \u00e1 \u00e1rinu 2009. Vi\u00f0 lauslega athugun \u00e1 umfangi og ums\u00fdslu h\u00e9ra\u00f0sskjalasafna \u00e1 \u00fev\u00ed \u00e1ri kemur \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 h\u00e9ra\u00f0sskjalas\u00f6fnin \u00e1 \u00cdslandi t\u00f3ku \u00e1 m\u00f3ti um 10.000 gestum \u00fea\u00f0 \u00e1r. \u00deau sv\u00f6ru\u00f0u u.\u00fe.b. 4000 fyrirspurnum, sem b\u00e1rust um t\u00f6lvup\u00f3st, br\u00e9flega e\u00f0a s\u00edmlei\u00f0is. \u00cd \u00feeirra b\u00e6kur voru skr\u00e1\u00f0ar um 700 afhendingar, sem voru me\u00f0 \u00fdmsu m\u00f3ti \u2013 allt fr\u00e1 st\u00f3rum opinberum skjalas\u00f6fnum, ni\u00f0ur \u00ed l\u00edtil einkas\u00f6fn. R\u00edflega 30 starfsmenn (st\u00f6\u00f0ugildi) st\u00f6rfu\u00f0u \u00e1 s\u00f6fnunum \u00e1 \u00fev\u00ed \u00e1ri. Helstu s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingar um skjalav\u00f6rslu sveitarf\u00e9laga starfa \u00e1 h\u00e9ra\u00f0sskjalas\u00f6fnunum, starfsmenn \u00feeirra eru me\u00f0 \u00e1ratuga reynslu af skjalav\u00f6rslu sveitarf\u00e9laga, \u00feekkja vel til \u00ed s\u00ednu n\u00e6rumhverfi og h\u00e9ra\u00f0sskjalas\u00f6fnin eru vel kynnt me\u00f0al \u00edb\u00faa. Sveitarf\u00e9l\u00f6gin \u00ed landinu leggja \u00feessum s\u00f6fnum til verulegt f\u00e9. M\u00e1 \u00e6tla a\u00f0 s\u00fa upph\u00e6\u00f0 hafi veri\u00f0 um 200-250 millj\u00f3nir \u00e1 \u00e1rinu 2009, en er \u00fe\u00e1 raunar ekki \u00ed \u00f6llum tilfellum gert r\u00e1\u00f0 fyrir h\u00fasn\u00e6\u00f0iskostna\u00f0i, sem er verulegur. \u00deess ber hins vegar geta a\u00f0 r\u00edki\u00f0 lag\u00f0i h\u00e9ra\u00f0sskjalas\u00f6fnunum til 14,7 millj\u00f3nir \u00e1 \u00e1rinu 2010 en \u00ed fj\u00e1rlagafrumvarpi \u00e1rsins 2011 er s\u00fa upph\u00e6\u00f0 skorin ni\u00f0ur um helming.<\/p>\n<p>Samkv\u00e6mt n\u00fagildandi l\u00f6gum um \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafn og regluger\u00f0 um h\u00e9ra\u00f0sskjalas\u00f6fn er h\u00e9ra\u00f0sskjalas\u00f6fnum fengi\u00f0 \u00fea\u00f0 hlutverk a\u00f0 sinna skjalav\u00f6rslu \u00e1kve\u00f0inna a\u00f0ila, r\u00e1\u00f0gj\u00f6f, skr\u00e1ningu skjala og s\u00f6fnun einkaskjala auk lj\u00f3smynda. \u00deessu hlutverki hafa s\u00f6fnin reynt a\u00f0 sinna af kostg\u00e6fni. Hlutverk h\u00e9ra\u00f0sskjalasafna gagnvart \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafni hefur veri\u00f0 nokku\u00f0 sk\u00fdrt \u00ed flestum atri\u00f0um. \u00deeirri verkaskiptingu, sem komi\u00f0 var \u00e1 \u00e1ri\u00f0 1947, er kollvarpa\u00f0 ver\u00f0i \u00feetta frumvarp a\u00f0 l\u00f6gum. H\u00e9ra\u00f0sskjalas\u00f6fnin eru stj\u00f3rns\u00fdslu- og menningarstofnanir hvert \u00e1 s\u00ednu sv\u00e6\u00f0i. \u00deau veita nau\u00f0synlega a\u00f0sto\u00f0 \u00ed n\u00e6rumhverfi safnsins og leitast vi\u00f0 a\u00f0 auka traust til starfseminnar me\u00f0al almennings. \u00deess vegna hefur h\u00e9ra\u00f0sskjalas\u00f6fnunum tekist a\u00f0 safna gr\u00ed\u00f0arlegu magni af \u00f3metanlegum heimilum um bygg\u00f0 og s\u00f6gu v\u00ed\u00f0svegar um land til vi\u00f0b\u00f3tar vi\u00f0 \u00feau opinberu g\u00f6gn, sem \u00feeim ber a\u00f0 safna l\u00f6gum samkv\u00e6mt.<\/p>\n<p>H\u00e9ra\u00f0sskjalav\u00f6r\u00f0um er ekki anna\u00f0 kunnugt en a\u00f0 sveitarf\u00e9l\u00f6gin s\u00e9u almennt \u00e1n\u00e6g\u00f0 me\u00f0 \u00fej\u00f3nustu h\u00e9ra\u00f0sskjalasafnanna og telja starfsemi \u00feeirra mikilv\u00e6ga. Ef s\u00fa hugmynd er uppi a\u00f0 breyta grunnger\u00f0 h\u00e9ra\u00f0sskjalasafna \u00ed \u00feessum l\u00f6gum, er mj\u00f6g mikilv\u00e6gt a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00fe\u00e1 breytingu vi\u00f0 sveitarf\u00e9l\u00f6gin sem reka s\u00f6fnin. Um m\u00f6rg h\u00e9ra\u00f0sskjalasafnanna gilda stofnsam\u00feykktir sem hafa gildandi l\u00f6g a\u00f0 forsendu.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er sko\u00f0un h\u00e9ra\u00f0sskjalavar\u00f0a a\u00f0 \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafn \u00cdslands s\u00e9 h\u00f6fu\u00f0safn skjalav\u00f6rslu \u00e1 \u00cdslandi og \u00fea\u00f0 eigi a\u00f0 hafa eftirlit me\u00f0 \u00f6\u00f0rum skjalav\u00f6rslustofnunum. \u00cd dr\u00f6gum a\u00f0 lagatextanum er hins vegar gengi\u00f0 svo langt a\u00f0 ekki ver\u00f0ur vi\u00f0 una\u00f0. \u00cd dr\u00f6gunum stendur m.a. \u201e\u00fej\u00f3\u00f0skjalav\u00f6r\u00f0ur \u00e1 frj\u00e1lsan a\u00f0gang a\u00f0 starfsst\u00f6\u00f0vum h\u00e9ra\u00f0sskjalasafna til athugana \u00ed \u00fe\u00e1gu starfs s\u00edns og skulu starfsmenn h\u00e9ra\u00f0sskjalasafna l\u00e1ta honum \u00ed t\u00e9 alla nau\u00f0synlega a\u00f0sto\u00f0 af \u00fev\u00ed tilefni.\u201c \u00deessi texti vir\u00f0ist tekinn upp \u00far l\u00f6gum um Umbo\u00f0smann Al\u00feingis. Vi\u00f0 teljum a\u00f0 sl\u00edk lagasetning um stofnanir sveitarf\u00e9laga gagnvart r\u00edkisstofnun eigi s\u00e9r ekki a\u00f0ra hli\u00f0st\u00e6\u00f0u og teljum vi\u00f0 a\u00f0 sl\u00edk heimild \u00ed l\u00f6gum eigi fremur heima \u00ed l\u00f6gum um saks\u00f3kn \u00ed d\u00f3msm\u00e1lum en \u00ed samskiptum stofnana r\u00edkis og sveitarf\u00e9laga.<\/p>\n<p>H\u00e9r a\u00f0 undan hafa veri\u00f0 rakin nokkur meginatri\u00f0i sem var\u00f0a fyrirliggjandi dr\u00f6g a\u00f0 frumvarpi til laga um \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafn \u00cdslands. H\u00e9ra\u00f0sskjalaver\u00f0ir munu n\u00fdta s\u00e9r r\u00e9tt til \u00feess, einir e\u00f0a fleiri saman, a\u00f0 gera \u00edtarlegri athugasemdir vi\u00f0 \u00feessi dr\u00f6g eftir \u00fev\u00ed sem \u00feeir hafa t\u00f6k \u00e1 \u00fear til veittur frestur til \u00feess rennur \u00fat.<\/p>\n<p>Forsvarsmenn ne\u00f0angreindra h\u00e9ra\u00f0sskjalasafna telja a\u00f0 fyrirliggjandi dr\u00f6g a\u00f0 frumvarpi til laga um \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafn \u00cdslands \u00feurfi verulegrar endursko\u00f0unar vi\u00f0 og vonum vi\u00f0 a\u00f0 Mennta- og menningarm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneyti\u00f0 taki \u00fe\u00e6r athugasemdir til greina sem h\u00e9r eru settar fram.<\/p>\n<p>F.h. eftirtalinna h\u00e9ra\u00f0sskjalasafna.<\/p>\n<p><em>Hrafnkell L\u00e1russon, forst\u00f6\u00f0uma\u00f0ur H\u00e9ra\u00f0sskjalasafns Austfir\u00f0inga<\/em><\/p>\n<div>H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn Austfir\u00f0inga<\/div>\n<div>H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn Neskaupsta\u00f0ar<\/div>\n<div>H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn Austur-Skaftafellss\u00fdslu<\/div>\n<div>H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn Rang\u00e6inga og Vestur-Skaftfellinga<\/div>\n<div>H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn Vestmannaeyja<\/div>\n<div>H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn \u00c1rnesinga<\/div>\n<div>H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn K\u00f3pavogs<\/div>\n<div>Borgarskjalasafn Reykjav\u00edkur<\/div>\n<div>H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn Mosfellsb\u00e6jar<\/div>\n<div>H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn Akraneskaupsta\u00f0ar<\/div>\n<div>H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn Borgarfjar\u00f0ar<\/div>\n<div>H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn Dalas\u00fdslu<\/div>\n<div>H\u00e9ra\u00f0sskjalasafni\u00f0 \u00cdsafir\u00f0i<\/div>\n<div>H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn Vestur-H\u00fanavatnss\u00fdslu<\/div>\n<div>H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn Austur-H\u00fanavatnss\u00fdslu<\/div>\n<div>H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn Skagafir\u00f0inga<\/div>\n<div>H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn Siglufjar\u00f0ar<\/div>\n<div>H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn Svarfd\u00e6la<\/div>\n<div>H\u00e9ra\u00f0sskjalasafni\u00f0 \u00e1 Akureyri<\/div>\n<div>H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn \u00deingeyinga<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>H\u00e9ra\u00f0sskjalaver\u00f0ir allra 20 h\u00e9ra\u00f0sskjalasafna \u00e1 landinu hafa sameiginlega sent Mennta- og menningarm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneyti athugasemdir vi\u00f0 dr\u00f6g a\u00f0 frumvarpi til laga um \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafn \u00cdslands. Um nokkurn t\u00edma hefur veri\u00f0 unni\u00f0 a\u00f0 heildarendursko\u00f0un \u00e1 l\u00f6gum um \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafn \u00cdslands. Dr\u00f6gin eru n\u00fa a\u00f0gengileg \u00e1<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[5],"tags":[],"class_list":["post-269","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-frettir"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/269","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=269"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/269\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":270,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/269\/revisions\/270"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=269"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=269"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=269"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}