{"id":1315,"date":"2017-01-05T09:50:52","date_gmt":"2017-01-05T09:50:52","guid":{"rendered":"http:\/\/heradsskjalasafn.is\/?p=1315"},"modified":"2017-01-05T09:52:54","modified_gmt":"2017-01-05T09:52:54","slug":"heradsskjalasafn-austfirdinga-40-ara","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/?p=1315","title":{"rendered":"H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn Austfir\u00f0inga 40 \u00e1ra"},"content":{"rendered":"<p style=\"text-align: center;\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"aligncenter wp-image-1314 size-full\" src=\"http:\/\/heradsskjalasafn.is\/wp-content\/uploads\/2017\/01\/Her_aust_afm.jpg\" width=\"800\" height=\"360\" srcset=\"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/wp-content\/uploads\/2017\/01\/Her_aust_afm.jpg 800w, https:\/\/heradsskjalasafn.is\/wp-content\/uploads\/2017\/01\/Her_aust_afm-300x135.jpg 300w, https:\/\/heradsskjalasafn.is\/wp-content\/uploads\/2017\/01\/Her_aust_afm-768x346.jpg 768w\" sizes=\"auto, (max-width: 800px) 100vw, 800px\" \/><\/p>\n<p style=\"text-align: center;\"><strong>H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn Austfir\u00f0inga 40 \u00e1ra<br \/>\n1976-2016<\/strong><\/p>\n<p>H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn Austfir\u00f0inga var stofna\u00f0 1976 samkv\u00e6mt l\u00f6gum um h\u00e9ra\u00f0sskjalas\u00f6fn fr\u00e1 \u00e1rinu 1947. Stofnendur \u00feess og eigendur voru: Su\u00f0ur- M\u00falas\u00fdsla a\u00f0 2\/3 hlutum og Nor\u00f0ur-M\u00falas\u00fdsla a\u00f0 1\/3. \u00deann 29. apr\u00edl 1992 breyttist eignara\u00f0ildin a\u00f0 safninu vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 stofna\u00f0 var bygg\u00f0asamlag um rekstur \u00feess. A\u00f0ilar a\u00f0 bygg\u00f0asamlaginu og n\u00faverandi eigendur eru \u00f6ll sveitarf\u00e9l\u00f6g \u00ed M\u00falas\u00fdslum. Safni\u00f0 starfar n\u00fa samkv\u00e6mt l\u00f6gum um opinber skjalas\u00f6fn fr\u00e1 \u00e1rinu 2014.<\/p>\n<p>Hugmyndin um stofnun h\u00e9ra\u00f0sskjalasafns mun fyrst hafa komi\u00f0 fram \u00e1 Fj\u00f3r\u00f0ungs\u00feingi \u00e1ri\u00f0 1949 en ekki komst hreyfing \u00e1 m\u00e1li\u00f0 fyrr en um 1970 \u00feegar endurvaktar voru hugmyndir um stofnun skjalasafns fyrir Austfir\u00f0inga. \u00c1ri\u00f0 1971 sam- \u00feykkti s\u00fdslunefnd Su\u00f0ur-M\u00falas\u00fdslu a\u00f0 minnast ellefu alda afm\u00e6lis \u00cdslandsbygg\u00f0ar me\u00f0 stofnun h\u00e9ra\u00f0sskjalasafns og skyldi leita\u00f0 samstarfs vi\u00f0 sveitarf\u00e9l\u00f6g\u00a0 \u00ed\u00a0 M\u00fala\u00feingi.\u00a0 \u00c1ri\u00f0\u00a0 1972\u00a0 ger\u00f0ist Nor\u00f0ur-M\u00falas\u00fdsla a\u00f0ili a\u00f0 v\u00e6ntanlegu safni, en kaupsta\u00f0irnir Neskaupsta\u00f0ur og Sey\u00f0isfj\u00f6r\u00f0ur af\u00fe\u00f6kku\u00f0u \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku, en komu seinna til samstarfs. N\u00e6stu tv\u00f6 \u00e1rin ger\u00f0ist f\u00e1tt anna\u00f0 en a\u00f0 s\u00fdslurnar festu kaup \u00e1 h\u00fasi fyrir safni\u00f0. Var \u00fea\u00f0 gamla P\u00f3st- og s\u00edmst\u00f6\u00f0varh\u00fasi\u00f0 vi\u00f0 Kaupvang \u00e1 Egilsst\u00f6\u00f0um. Snemma \u00e1rs 1974 ger\u00f0ist \u00fea\u00f0 svo a\u00f0 v\u00e6ntanlegt safn f\u00e9kk a\u00f0 gj\u00f6f b\u00f3kasafn \u00d6nnu Gu\u00f0n\u00fdjar Gu\u00f0mundsd\u00f3ttur\u00a0 og\u00a0 Halld\u00f3rs\u00a0 \u00c1sgr\u00edmssonar. Halld\u00f3r var \u00fe\u00e1 l\u00e1tinn en \u00feau hj\u00f3n h\u00f6f\u00f0u \u00e1\u00f0ur \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 gefa b\u00f3kasafni\u00f0 til Austurlands. V\u00f6ldu Anna Gu\u00f0n\u00fd og synir hennar a\u00f0 \u00fea\u00f0 skyldi fara til h\u00e9ra\u00f0sskjalasafnsins. Var b\u00f3kagj\u00f6fin um 5000 bindi a\u00f0 umfangi \u00e1samt miklu safni t\u00edmarita. Hefur b\u00f3kasafni\u00f0 m.a. a\u00f0 geyma mikinn fr\u00f3\u00f0leik um \u00e6ttfr\u00e6\u00f0i, \u00fej\u00f3\u00f0fr\u00e6\u00f0i og s\u00f6gu Austurlands sem hefur \u00ed gegnum \u00e1rin au\u00f0velda\u00f0 starfsf\u00f3lki og safngestum vinnu vi\u00f0 heimildaleit og skr\u00e1ningu.<\/p>\n<p>B\u00f3kagj\u00f6fin kom skri\u00f0i \u00e1 framkv\u00e6mdir og var H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn Austfir\u00f0inga stofna\u00f0 \u00e1 \u00e1ttr\u00e6\u00f0is afm\u00e6li Halld\u00f3rs \u00c1sgr\u00edmssonar \u00feann 17. apr\u00edl 1976. Var forma\u00f0ur fyrstu stj\u00f3rnar kj\u00f6rinn J\u00f3n Kristj\u00e1nsson. Skjalav\u00f6r\u00f0ur var r\u00e1\u00f0inn \u00c1rmann Halld\u00f3rsson. Hans bei\u00f0 \u00fea\u00f0 mikla verkefni a\u00f0 koma fyrir b\u00f3kum og skj\u00f6lum, innr\u00e9tta lestrarsal og s\u00ed\u00f0ast en ekki s\u00edst a\u00f0 hefja skr\u00e1ningu b\u00f3ka og skjala. Var safni\u00f0 formlega opna\u00f0 hausti\u00f0 1977 og var til a\u00f0 byrja me\u00f0 opi\u00f0 tvisvar \u00ed viku, 4 t\u00edma hvorn dag.<\/p>\n<p>Meginhlutverk H\u00e9ra\u00f0sskjalasafnsins er a\u00f0 taka vi\u00f0 skj\u00f6lum skilaskyldra a\u00f0ila, sveitarf\u00e9laga og stofnana \u00feeirra, skr\u00e1 \u00feau og var\u00f0veita. Einnig er teki\u00f0 vi\u00f0 einkaskj\u00f6lum t.d. br\u00e9fas\u00f6fnum, lj\u00f3smyndum og dagb\u00f3kum einstaklinga og skj\u00f6lum f\u00e9laga og fyrirt\u00e6kja. A\u00f0 sl\u00edku efni er jafnan mikill fengur enda oft a\u00f0 finna \u00ed \u00fev\u00ed uppl\u00fdsingar um samf\u00e9l\u00f6g li\u00f0ins t\u00edma sem ekki eru \u00ed opinberum skj\u00f6lum.<\/p>\n<p>Fyrstu \u00e1rin vir\u00f0ist hafa g\u00e6tt treg\u00f0u hj\u00e1 sveitarf\u00e9l\u00f6gum vi\u00f0 afhendingu skjala og voru \u00feeir Helgi G\u00edslason \u00e1 Helgafelli og Eir\u00edkur Eir\u00edksson fr\u00e1 Dagver\u00f0ager\u00f0i sendir \u00fat af \u00f6rkinni, b\u00e1\u00f0ir reyndir smalar \u00e1 fornan fr\u00f3\u00f0leik og var\u00f0 vel til fanga. Einnig b\u00e1rust hreppsskj\u00f6l af Austurlandi sem komin voru \u00e1 \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafni\u00f0.<\/p>\n<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignnone wp-image-1311 size-large\" src=\"http:\/\/heradsskjalasafn.is\/wp-content\/uploads\/2017\/01\/AbH-60-0023_2-1024x724.jpg\" width=\"540\" height=\"382\" srcset=\"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/wp-content\/uploads\/2017\/01\/AbH-60-0023_2-1024x724.jpg 1024w, https:\/\/heradsskjalasafn.is\/wp-content\/uploads\/2017\/01\/AbH-60-0023_2-300x212.jpg 300w, https:\/\/heradsskjalasafn.is\/wp-content\/uploads\/2017\/01\/AbH-60-0023_2-768x543.jpg 768w, https:\/\/heradsskjalasafn.is\/wp-content\/uploads\/2017\/01\/AbH-60-0023_2.jpg 1200w\" sizes=\"auto, (max-width: 540px) 100vw, 540px\" \/><\/p>\n<p style=\"text-align: left;\"><em>Sigur\u00f0ur \u00d3skar P\u00e1lsson og \u00c1rmann Halld\u00f3rsson<\/em><\/p>\n<p>Sigur\u00f0ur \u00d3skar P\u00e1lsson t\u00f3k vi\u00f0 af \u00c1rmanni sem forst\u00f6\u00f0uma\u00f0ur \u00e1ri\u00f0 1984. Sem fyrr var unni\u00f0 \u00f6tullega a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 flokka og skr\u00e1 skj\u00f6l. Jafnframt \u00f6nnu\u00f0ust forst\u00f6\u00f0umenn b\u00f3kakaup og l\u00f6g\u00f0u sig fram um a\u00f0 leita uppi eint\u00f6k sem vanta\u00f0i \u00ed bla\u00f0a- og t\u00edmaritasafn. Ennfremur sinntu \u00feeir af lj\u00fafmennsku bei\u00f0num safngesta sem oftar en ekki sn\u00e9ru a\u00f0 t\u00edmafrekum ranns\u00f3knum eins og a\u00f0sto\u00f0 vi\u00f0 \u00e6ttfr\u00e6\u00f0igr\u00fask. T\u00f6lvuskr\u00e1ning h\u00f3fst \u00ed t\u00ed\u00f0 Sigur\u00f0ar \u00d3skars og vann Gu\u00f0geir Ingvarsson a\u00f0 henni.<\/p>\n<p>\u00deann 17. apr\u00edl \u00e1ri\u00f0 1996 flutti H\u00e9ra\u00f0sskjalasafni\u00f0 \u00ed Safnah\u00fasi\u00f0, n\u00fdtt h\u00fasn\u00e6\u00f0i a\u00f0 Laufsk\u00f3gum 1 \u00e1 Egilsst\u00f6\u00f0um. Sama \u00e1r t\u00f3k Hrafnkell A. J\u00f3nsson vi\u00f0 starfi h\u00e9ra\u00f0sskjalavar\u00f0ar. H\u00f3fst n\u00fa n\u00fdr kafli \u00ed starfi safnsins. B\u00f3kasafni\u00f0 var skr\u00e1\u00f0 \u00ed landskerfi b\u00f3kasafna og \u00e1fram var unni\u00f0 vi\u00f0 skr\u00e1ningu skjala- safns. T\u00f6lvuskr\u00e1ning Lj\u00f3smyndasafns Austurlands h\u00f3fst um svipa\u00f0 leyti en safni\u00f0, sem er \u00ed eigu H\u00e9ra\u00f0sskjalasafns, Minjasafns Austurlands og SSA, er h\u00fdst \u00ed H\u00e9ra\u00f0sskjalasafninu og reki\u00f0 undir hatti \u00feess. Hafa \u00f6ll s\u00f6fnin vaxi\u00f0 miki\u00f0 a\u00f0 umfangi \u00ed \u00e1ranna r\u00e1s.<\/p>\n<p>\u00cd H\u00e9ra\u00f0sskjalasafninu er \u00e1g\u00e6t a\u00f0sta\u00f0a fyrir fr\u00e6\u00f0ii\u00f0kanir og s\u00f6fnin luma \u00e1 margv\u00edslegu efni sem n\u00fdst getur vi\u00f0 fj\u00f6lbreyttar ranns\u00f3knir, hvort heldur sem \u00fe\u00e6r eru unnar af fr\u00e6\u00f0im\u00f6nnum, nemum e\u00f0a \u00f6\u00f0rum sem kj\u00f3sa a\u00f0 n\u00fdta s\u00e9r safnkostinn. Margs konar g\u00f6gn eru \u00ed skjalasafninu, \u00fear m\u00e1 t.d. leita uppl\u00fdsinga um \u00f6rnefni, landamerki e\u00f0a um starfsemi f\u00e9laga sem afhent hafa safninu skj\u00f6l s\u00edn. \u00de\u00e1 er \u00fear a\u00f0 finna \u00fdmsar f\u00e1g\u00e6tar b\u00e6kur og gott t\u00edmaritasafn. \u00dev\u00ed ver\u00f0ur ekki neita\u00f0 a\u00f0 t\u00f6lvuv\u00e6\u00f0ingin hefur haft s\u00edn \u00e1hrif \u00e1 a\u00f0s\u00f3kn og e\u00f0li fyrirspurna. Vilji menn vita eitthva\u00f0 um \u00e6ttir s\u00ednar, n\u00fa til dags, nota \u00feeir t\u00f6lvuna og fara inn \u00e1 \u00cdslendingab\u00f3k og flest eldri t\u00edmarit er h\u00e6gt a\u00f0 kynna s\u00e9r \u00e1 vefnum T\u00edmarit.is. Engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur \u00e1 safni\u00f0 enn s\u00edna fastagesti og velunnara og margir l\u00edta inn sem h\u00e9r eru \u00e1 fer\u00f0alagi.<\/p>\n<p>Hrafnkell A. J\u00f3nsson l\u00e9st langt fyrir aldur fram \u00ed ma\u00ed 2007 og t\u00f3k Hrafnkell L\u00e1russon vi\u00f0 starfi hans \u00ed jan\u00faar 2008. N\u00faverandi forst\u00f6\u00f0uma\u00f0ur er B\u00e1ra Stef\u00e1nsd\u00f3ttir sem h\u00f3f st\u00f6rf \u00ed ma\u00ed 2013. \u00cd H\u00e9ra\u00f0sskjalasafninu starfa \u00fer\u00edr fastir starfsmenn \u00ed samtals tveimur st\u00f6\u00f0ugildum. Auk \u00feeirra hafa undanfarin \u00e1r veri\u00f0 vi\u00f0 safni\u00f0 starfsmenn sem sinnt hafa t\u00edmabundnum verkefnum. M\u00e1 \u00fear nefna innsl\u00e1tt s\u00f3knarmannatala og sk\u00f6nnun lj\u00f3smynda en afraksturinn af \u00feeirri vinnu m\u00e1 sj\u00e1 \u00e1 lj\u00f3smyndavef safnsins <a href=\"http:\/\/myndir.heraust.is\/fotoweb\/\" target=\"_blank\">myndir.heraust.is<\/a>. \u00de\u00e1 hefur safni\u00f0 heimas\u00ed\u00f0una<a href=\"http:\/\/www.heraust.is\/\" target=\"_blank\"> heraust.is<\/a> sem hefur veri\u00f0 uppf\u00e6r\u00f0 \u00ed tilefni af afm\u00e6lis\u00e1rinu.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn Austfir\u00f0inga 40 \u00e1ra 1976-2016 H\u00e9ra\u00f0sskjalasafn Austfir\u00f0inga var stofna\u00f0 1976 samkv\u00e6mt l\u00f6gum um h\u00e9ra\u00f0sskjalas\u00f6fn fr\u00e1 \u00e1rinu 1947. Stofnendur \u00feess og eigendur voru: Su\u00f0ur- M\u00falas\u00fdsla a\u00f0 2\/3 hlutum og Nor\u00f0ur-M\u00falas\u00fdsla a\u00f0 1\/3. \u00deann 29. apr\u00edl 1992 breyttist eignara\u00f0ildin a\u00f0 safninu vi\u00f0<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[5],"tags":[],"class_list":["post-1315","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-frettir"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1315","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1315"}],"version-history":[{"count":7,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1315\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1322,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1315\/revisions\/1322"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1315"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1315"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/heradsskjalasafn.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1315"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}