herak_syning_2015-2

Í húsi Amtsbókasafns og Héraðsskjalasafns  var farandsýningin „Vér heilsum glaðar framtíðinni“ opnuð 2.nóvember en hún er hluti samnefndrar sýningar er opnuð var í Þjóðarbókhlöðu 16. maí síðastliðinn.
Sýningin er liður í því að minnast 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna á Íslandi.  Hluti sýningarspjaldanna í Þjóðarbókhlöðu var prentaður sérstaklega og hafa söfn víðsvegar um landið fengið þau til afnota og búið til sýningar með eigin efni úr héraði.  Að þessu sinni var því bætt við skjölum úr geymslum Héraðsskjalasafnsins með efni sem tengja má sýningunni.  Einnig var sett upp myndasýning af konum í stjórnmálum, bæði þingkonum á Norðurlandi eystra og konum í sveitarstjórnum.  Sýningin er opin mánudag til föstudags kl. 10 – 19, laugardag kl. 12-16  og stendur til 30. nóvember.

herak_syning_2015-3

Sýning Héraðsskjalasafnsins á Akureyri